«

»

Molar um málfar og miðla 645

Það getur  vart  talist vandað mál, þegar fréttamaður  segir,  að tiltekinn atburður hafi gerst  svo snemma sem .. Í níufréttum Ríkisútvarps (01.07.2011) talaði fréttamaður um tölvupósta sem hefðu verið sendir  svo snemma  sem … Þetta   er  enskættuð íslenska   alveg eins er það ekki vandað mál að tala um að  eitthvað sé á  pari við eitthvað  annað, þegar það er  jafnt  eða ámóta,  eins og sami fréttamaður  gerði í þessum fréttatíma.

 Það var óneitanlega dálítið skondið að heyra konu sem lengi  hefur verið í framvarðasveit íslenskra komnúnista lýsa  því í ágætum útvarpsþætti,  ,,Eyðibýlinu”  á  Rás eitt, hvað það hefði verið skelfilegt að herinn, skyldi hafa  farið af Miðnesheiðinni  af sjálfsdáðum, en við ekki getað  rekið hann !  Seint verður öllum gert til  hæfis.

Stórorður þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir forsætisráðherra ljúga (Bylgjan 30.06. 2011). Ekki lýgur sá hinn sami þingmaður. Að minnsta kosti ekki, þegar hann þegir þunnu hljóði og harðneitar að   skýra frá því hverjir  greiddu   háar upphæðir  til að koma honum á þing.

Undarlegt var að heyra  félagana í  morgunútvarpi Rásar tvö (30.06.2011) velta sér upp úr fyrirsögnum  sem í fólst tvíræðni á mörkum   kláms og voru þar nefndir til sögunnar kunnir einstaklingar. Molaskrifari er ekki viss um að öllum hlustendum hafi verið skemmt.  Það virtist líka koma umsjónarmönnum í aðra röndina á óvart að orðið skreið þýðir  harðfiskur, þurrkaður fiskur.

Frétt dagsins (30.06.2011) var á baksíðu  Fréttablaðsins, en þar sagði frá því, að íslenskur  þingmaður, Birgitta Jónsdóttir ætli sér að  ræða við menntamálaráðherra   Grikklands um ,,hvernig menningin í landinu hefur þróast”. Og Molaskrifari sem hélt að  grískir ráðherrar  hefðu öðrum hnöppum að hneppa þessa dagana, en  að  veita  íslenskum þingmönnum menningarleiðsögn um  sögu Grikklands..  Silfraður Egill Helgason dvelst nú á Grikklandi.    Egill  veit sitt af hverju um Grikkland og  gríska menningu. Birgitta hefði eins  getað rætt við hann.

Ferðaskipuleggjandinn Iceland Express kaupir í dag (01.07.2011)  heilsíðuauglýsingu í DV og  sjálfsagt víðar til að  biðjast afsökunar  á óstundvísi  í  ferðum sem fyrirtækið  skipuleggur.  Í auglýsingunni kallar Iceland Express  sig  sparnaðarflugfélag, sem er ósatt. Iceland Express er ekki  flugfélag, það er ekki einu sinni ferðaskrifstofa. Það er  skráð hjá  Ferðamálastofu sem ferðaskipuleggjandi. Það geta allir séð sem skoða vef   Ferðamálastofu. Makalaust  hvernig þetta fyrirtæki kemst upp með að ljúga að fólki í auglýsingum. Iceland Express hefur ekkert flugrekstrarleyfi og á engar flugvélar.

Æ oftar heyrir Molaskrifari af  ferðum á  vegum Exland Express, sem eru felldar niður með  stuttum fyrirvara. Þá er  fólk  ef til vill  búið að  bóka  framhaldsflug og  lendir í allskyns  hremmingum, fyrir utan þá erfiðleika sem  óstundvísi fyrirtækisins  hefur í  för með sér fyrir þá sem  láta glepjast til að  eiga viðskipti við það. Reynslan hefur sýnt að fyrirtæki, sem  segja  viðskiptavinum sínum ósatt  eða  standa  ekki við þau boð sem auglýst hafa verið verða yfirleitt ekki  mjög  langlíf.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>