«

»

Auglýsingar á aðventu – Einkamálin markaðsvara

Það er  gaman að  fylgjast með  bókaauglýsingunum  á skjánum og í  blöðunum  núna  þegar   bókavertiðin er að hefjast. Þær  eru auðvitað  eins misjafnar og þær  eru margar.

Allt í einu  hefur  skotið upp kollinum  tískuorð,sem ég  minnist ekki  að hafa séð   áður í bókaauglýsingum. Þetta  er  orðið þéttur og  samsetningar þar sem það er  notað.  Ný bók Hallgríms Helgasonar er „þéttasta  bók  Hallgríms“.  Í umsögnum  um nýjan krimma Arnaldar  er  talað um  „Einn af þéttustu krimmum Arnaldar“ og “ þéttbyggð  drama ´í þaulhugsuðum  stíl…“ Þetta er  mikil hugmyndaauðgi,  ekki satt? Engu að  síður  hlakka ég til lesa  Arnald um jólin.

Um eina   bók  er  sagt, að  lesendur  geti vart beðið  með  að  sökkva  tönnunum í meira“. Ekki  get ég ímyndað mér hvaðan  þessi  líking  kemur.

Sex hundruð blaðsíðna lofgjörð um Ólaf Ragnar Grímsson  forseta Íslands  er  auglýst  með því að   segja,  að sagt sé  frá „..einkamálum hans  sem verið hafa í sviðsljósinu“.  Það er sérkennilegt að einkamál þjóðhöfðingjans ,  forseta lýðveldisins   skuli vera orðin  markaðsvara.  Þetta auðveldar manni að  skilja  talið um „Séð og heyrtvæðingu  forsetaembættisins.

En það er  ekki  dónalegt að verslun sem  ber hið rammíslenska  heiti „Office 1“ skuli  nú þegar  bókavertíðin er  rétt að  byrja  bjóða  bókina  um  forsetann,sem  sumir  eru farnir kalla  „Bankabókina“ , með  50%  afslætti.  Hvað þýðir það  ?  Kannski   er salan  fremur dræm.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>