Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ talaði (02.09.2011) um gestafjölda á Ljósanótt. Hann talaði um aukinn þéttleika í þátttökunni. Þetta er auðvitað hálfgert bull í kansellístíl. Hann var að tala um aukna þátttöku.
Egill sendi eftirfarandi (02.09.2011): ,,Ég sá í sjónvarpsauglýsingu í gærkvöldi að Ljósanótt stendur yfir frá einn til fjórir september. Það er eins og auglýsingafólk kunni margt hvert ekki að nota raðtölur. Í auglýsingunni stendur: „1 – 4 september.“ Punkturinn er settur aftan við mánuðinn. Svo stendur, undir orðinu „Ljósanótt“, „– Reykjanesbær 2011“. Ljósanótt er í Reykjanesbæ, ekki í Reykjanesbær. Þarna hefur prófarkalesturinn steingleymst.” Molaskrifari þakkar sendinguna.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (02.09.2011) var sagt: … vegna þess uppnáms sem málið hefur vakið. Mál geta valdið uppnámi, ekki vakið uppnám. Þeir fréttastofumenn eiga að vita betur.
Jóhann sendi Molum tengil á frétt úr Morgunblaðinu (02.09.2011). Stórkostlegt lesefni. Mogginn bregst ekki. http://mbl.is/folk/frettir/2011/09/02/mel_b_eignast_stulku/
Úr mbl.is (02.09.2011): Frumvarpi um stjórnarráð var synjuð afgreiðsla úr allsherjarnefnd í morgun. Synjuð afgreiðsla? Átt er við að frumvarpið hafi ekki fengist afgreitt úr nefnd.
Meira úr mbl.is (02.09.2011) Maðurinn hafði jafnframt verið til vandræða og valdið ónæði með að því hringja á dyrabjöllur í tíma og ótíma. Að hringja á dyrabjöllur er barnamál. Næsti bær við að tala um að dingla, þegar dyrabjöllu er hringt.
Egill sendi eftirfarandi (2.09.2011): Matthías Matthíasson á Rás 2, sagði nú rétt áðan: „Hér eru allir veggir betrekkjaðir með myndum.“ Hér hefði mátt vanda sig betur. Molaskrifari bætir við að hann minnist þess í bernsku að sögnin að veggfóðra var nær óþekkt. Alltaf var talað um að betrekkja, en í þessu tilviki hefði verið sagt: …. betrekktir með myndum.
Til er plagg sem heitir Málstefna Ríkisútvarpsins ( líklega er búið að breyta nafninu í Málstefna Rúv, því orðið Ríkisútvarp er nú algjört bannorð í Efstaleitinu). Í fyrsta kafla sem ber heitir 1. Almennt, segir svo í 2. málsgrein: ,,Allt málfar í Ríkisútvarpinu á að vera til fyrirmyndar og allt sem frá því kemur á vandaðri íslensku”. Og síðar í þessum kafla: ,,Starfsmönnum Ríkisútvarpsins ber að kynna sér málstefnuna og haga störfum sínum í samræmi við hana.”
Þegar þetta er lesið þá vaknar sú spurning hversvegna hellt er yfir þjóðina á hverjum föstudagsmorgni á Rás tvö í svo kölluðum slúðurþætti, töluðu máli sem er ambögusúpa krydduð allskyns enskuslettum? Sletturnar gera súpuna ekki kræsilegri nema síður sé. Þetta er í beinni andstöðu við yfirlýsta málstefnu Ríkisútvarpsins. Hversvegna setur opinber stofnun sér starfsreglur og hundsar þær síðan, fer ekkert eftir þeim? Lætur eins og reglurnar séu ekki til. Af hverju fara yfirmenn Ríkisútvarpsins ekki að þeim reglum sem þeir hafa sjálfir samið og sett? Eru reglurnar og málfarsstefnan bara upp á punt? Er þetta bara sýndarmennska ? Borin von er að búast við svörum úr Efstaleiti.
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
04/09/2011 at 18:32 (UTC 0)
Það líst mér hreint ekkert á. Heimur versnandi fer.
Björn skrifar:
04/09/2011 at 15:42 (UTC 0)
Hvernig líst þér á nýjan veitingastað norður í landi sem heitir Kaffi Kú?
Hann er að vísu í fjósi en ég hefði haldið að bændur væru betur að sér um íslensku en þetta