Netabáturinn fékk færið í skrúfuna. Þekking á undirstöðuatriðum í helstu atvinnugreinum þjóðarinnar er ekki til staðar á ritstjórnum. Næst fær líklega handfærabátur netin í skrúfuna. Svo getur línubátur líklega fengið trollið í skrúfuna!
Fékk færið í skrúfuna | |
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Víðir Benediktsson skrifar:
11/12/2008 at 21:40 (UTC 0)
60 faðma færi, 30 faðma viðbót. Þetta er bara bara tungumál sem netasjómenn og fleiri nota. Trúlega hefur blaðamaðurinn haft þetta orðrétt eftir skipstjóranum. Það eu til margs konar færi. Handfæri, netafæri, línufæri o.s.frv.
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
11/12/2008 at 16:02 (UTC 0)
Það sem þú nefnir hef ég alltaf heyrt kölluð bólfæri. Færi= handfæri.
Ólafur Gunnarsson skrifar:
11/12/2008 at 15:51 (UTC 0)
Það er ekkert við þessa frétt að athuga. Ég var á netaveiðum í mörg ár og þar voru notuð færi þ.e.a.s. færið var hnítt í baujuna og lá þaðan í drekann til að hægt væri að hífa hana upp á síðuna. Það kann að vera að þú hafir verið á netum en slædduð þið þá upp trossurnar? Það er ekki gáfuleg aðferð og fer ákaflega illa með veiðarfærið.