Skítugir og tættir plastborðar sem einu sinni voru hvítir eru nú á næstum hverjum einasta ljósastaur milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
Mér er sagt, að samtök sem kenna sig við Nýtt lýðveldi hafi komið þessum plastborðum fyrir til að minna sig og málstað sinn.
Sé það rétt að þessi samtök beri ábyrgð á þessum umhverfissóðaskap ættu þau að sjá sóma sinn í fjarlægja þessar plastslitrur sem nú flygsast í vindinum. Varla ætlast þau til að bæjarstarfsmenn hreinsi þetta á kostnað skattborgara, – eða hvað ?
6 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Jóhanna skrifar:
28/02/2009 at 13:33 (UTC 0)
Ruth 09.43 En það er ekki þar með sagt að hann eigi að hanga þar um aldur og æfi.
Ruth skrifar:
28/02/2009 at 09:43 (UTC 0)
Afsakið – en var boðskapurinn ekki hengdur upp?
Jóhanna skrifar:
28/02/2009 at 00:29 (UTC 0)
Ég er þér innilega sammála, þetta er sóðaskapur. Hér fyrr á árum man ég eftir því að í t.d. kringum kosningar var mikið hengt út allskonar boðskapur á rafmagns- og ljósastaura. Eftir kosningar þá voru það einmitt auglýsendur (frambjóðendur) sem létu fjarlægja bréfasnifsin í burtu, eða það sem eftir var á staurunum.
Þetta þyrfti að vera undir eftirliti í dag, og gera almenningi grein fyrir því að þetta er sóðaskapur og þessu verði að breyta. Það myndi ekki skaða að setja sektir nógu háar svo að eftir því yrði farið.
Eiður skrifar:
24/02/2009 at 20:30 (UTC 0)
Þakka ábendinguna Ben.Ax. Við eigum að vera smámunasamir. Þetta er fljótfærnisleg klaufavilla,sem endurspeglar að ég hef ekki lesið þetta nógu vandlega yfir. Auðvitað á að vera nafnháttarmerki þarna. Þetta er ekki smámál.
Þakka þér fyrir. Kv Eiður
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson) skrifar:
24/02/2009 at 19:13 (UTC 0)
Sammála þessu en vegna þess að þú hefur áhuga á íslensku máli langar mig að spyrja þig um skoðun þína á notkun nafnháttarmerkis. Mér finnst það detta oft úr setningum hjá hinum og þessum og núna fannst mér til dæmis að þú hefðir átt að skrifa að fjarlægja. Þetta er að sjálfsögðu smámál en eigum við ekki að vera smámunasamir ef við erum að setja út á íslenskt mál á annað borð?
Guðmundur skrifar:
24/02/2009 at 17:49 (UTC 0)
Heyr heyr !