Í þessum molum hefur verið meira um last en lof. Ástæða er til að hrósa þeim, sem skrifa og lesa fréttir RÚV á nóttunni, en þar eru lang oftast að verki þeir Jón Thordarson og Kristófer Svavarsson. Fréttir þeirra eru á vönduðu máli og vel fluttar.
Stundum finnst mér að visir.is hljóti að vera verst skrifaði netmiðillinn:
Dæmi:
Ástralski rithöfundurinn Harry Nicolaides var sleppt lausum úr Taílensku fangelsi 21.02.
Íslenskum hjónum, með fjögur ung börn, og feðgum var flogið heim frá Danmörku í gær á kostnað…. og
Með von um betri framtíð í Danmörku flugu þau út ásamt bróður konunnar og sonar hans 22.02.
Um fangelsismál:
Yfirvöld hafa neyðst til að tvímenna í suma klefa… (Það væri ekki ónýtt að sjá yfirvöld tvímenna !)
Erlendum föngum fjölgar statt og stöðugt
Haft eftir talsmanni skattgreiðenda um greiðslur til þingmanna á Evrópuþinginu: “Hann sjái ekkert annað en rán um hábjartan dag”. Fréttaskrifari talar reyndar um Evrópuráðsþingið .Það er rugl. Fréttin er um þingmenn á Evrópuþinginu.
Þetta eru undirmálsskrif.
4 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Hrönn Sigurðardóttir skrifar:
27/02/2009 at 13:50 (UTC 0)
hehe góður pistill 😉
Sverrir Einarsson skrifar:
26/02/2009 at 14:02 (UTC 0)
Klukkan er tvö frrrrétttassstofa rrrríkisssúúútvarrrrpssssinnnssss Krrrrisssstóferrrr Svavvvarrrrssssson!!!!!!!
Klukkan er tvö fréttir Jón Tórdarson!!!!!!!!!
Hvort er nú áheyrilegra……ég nefnilega hlusta á þessar fréttir 1, 2, 5 og 6 fréttir á hverri nóttu og er þeirri nótt fegnastur þegar Krrrrrissssstófferrrr SSSSSvavarrrrssssssson les EKKI, sjaldan hefur sá maður prófarkarlesið fréttirnar, þær virðast standa í honum, jafnvel þó hann sé að lesa sömu fréttirnar í öllum fréttatímum (oftast nóg að ná 1 fréttunum) þá veit maður hvað er í þeim sem seinna koma Jón er þó skömminni skárri með að finna nýjar fréttir.
Sl. nótt þegar búið var að ákveða kaup Þórsmerkur á Mbl.is var ekki orð um það í neinum fréttatíma og ég tók eftir því að allar fréttir þá nótt voru erlendar…..meira segja fréttir af gengi 18 ára norsks stráks í skák þóttu honum merkilegri en salan á Morgunblaðinu.
Báðir mættu að ósekju lesa yfir þær fréttir sem þeir eru að fara að lesa upp áður en þeir lesa þær í útvarpið, þá yrði minna um tafs og hik.
Góðar stundir
Lady Elín skrifar:
25/02/2009 at 23:58 (UTC 0)
Ég vil þakka þér fyrir þessa pistla þína um málfar. Ég virkilega nýt þess að lesa þá þegar þeir birtast hérna. Ég er nemandi við Háskólann í Glasgow (hef verið það síðustu 6 ár) þar sem flest dagleg samskipti mín eru á ensku og það veitir ekki af að ég reyni að halda íslenskunni minni við. Ég reyni í þaula að vera eins vel máli farin á íslensku og mér er unnt, en það er stundum erfitt. Sérstaklega þegar ég er nýkomin heim á klakann. Sá brandari gengur milli vina minna að þegar ég loksins lýk námi að þá þurfi ég að mæta á námskeið hjá Mími, ,Íslenska fyrir útlendinga'. Með þessari kveðju vildi ég einungis sýna fram á að ég met þessi skrif þín hér mikils og þau eru mikil hjálp og ekki síst gott aðhald fyrir mig.
Elín
Helgi Már Arthursson skrifar:
25/02/2009 at 21:13 (UTC 0)
Gæti ekki verið meira sammála því sem þú segir um um þá Kristófer og Jón. Það er ekki bara vandað málfarið því oftar en ekki eru þeir félagar með áhugaverðar fréttir sem eru kærkomin viðbót við síbylju stuttfrétta dagsins. Vel þess virði að taka tólf og eitt fréttirnar að nóttu til.