«

»

Molar um málfar XIII

    Bæði borgarfulltrúi og blaðamaður sem   ræddu fréttir liðinnar viku í Kastljósi  létu sig  hafa að  tala um að „loka dílnum“. Þetta  er  íslensk  afbökun á   ensku  orðtaki “ to  close the  deal“.  Ekki boðlegt tungutak hjá  fólki sem vill vera marktækt.

  Kastljósið verður  daufara  og  daufara, eða þynnra og þynnra. Umræðan um fréttir vikunnar var  slöpp og  það sem á  eftir kom var mest kjánaskapur. Kastljós er ekki lengur  fréttaskýringaþáttur sem hægt er að taka  alvarlega , þótt  góðir  sprettir  séu enn öðru hverju. Þeir  eru hinsvegar of  fáir og  of langt á milli. Kastljós  þarf  að ganga í endurnýjun lífdaga.

  Í íþróttafréttum  RÚV sjónvarps  var sagt að Hamborgarar  hefðu „snúið  leiknum  við“. Væntanlega var átt við að   Hamborgurum  hefði  tekist að  snúa   leiknum sér í hag. Aftur er  enskan hér  í bakgrunni. Á ensku er ekkert að  því að  tala um „to turn the game  around“. Það er hinsvegar ekki íslenskulegt orðalag.

   Eyjubloggari  skrifar í  dag : „Klíkurnar hafa barist á banaspjót..“ Það er talað um að berast á banaspjót   —  að berjast. Þarna hefði átt að standa Klíkurnar  hafa borist á banaspjót.  Sami bloggari  skrifar: “ Það hefur reynst þrautinni  þyngri…“ Þarna  ætti að  standa   þrautin þyngri   eða þrautinni þyngra   eftir minni máltilfinningu, en  þetta er skrifað  fjarri mínum  góðu  handbókum  eins og  Merg málsins eftir  dr. Jón G.  Friðjónsson  svo  vera  má  að  þessi skoðun mín orki tvímælis.

3 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Steini Briem skrifar:

    „Áhafnarmeðlimur“ er della. Fólk getur til dæmis verið í áhöfn skips eða flugvélar, félagar í stjórnmálaflokki eða skipverjar á togara.

  2. Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson) skrifar:

    Sæll. Mér finnst gaman að lesa pistlana þína. Hvort þeir bera einhvern annan árangur en að skemmta okkur, sem erum sammála þér, veit ég ekki.

  3. Steini Briem skrifar:

    Eitthvað er þrautin þyngri. – Þekkt orðatiltæki frá síðari hluta 17. aldar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>