Glöggur Molalesandi bendir á frétt (10.10.2012) á pressan.is http://www.pressan.is/Frettir/Lesa_Erlent/selur-drap-hund og segir: ,,Mér þykja fréttir á Pressunni oftar en ekki klaufalega skrifaðar, einkum þýddar fréttir. Reyndar hefði ég ekki nennt að agnúast út í þessa frétt nema fyrir það orðalag að hundurinn hafi látist. · Hundurinn „lést“.· Eru veiðihundar gæludýr?· „Samkvæmt manninum …“· „… dró hann ofan í vatnið“ er klaufalegt orðalag og jafnframt undarlegt þegar rætt er um sjó. Selurinn hefur naumast verið í stöðuvatni, auk þess sem annars staðar í fréttinni er talað um flæðarmál. „… dró hann í kaf“ hefði verið eðlilegra”. Molaskrifari þakkar sendinga.
Í veðurfréttum Stöðvar tvö (10.10.2012) var notað orðið þungskýjað. Sjálfsagt er þetta orð einhverjum tamt. Molaskrifara er tamara að tala um að sé skýjað eða þungbúið.
Molaskrifari horfir stöku sinnum á snarpan hálftíma spurningaþátt í sænska sjónvarpinu SR2, Vem vet mest? Þátturinn er bráðskemmtilegur fyrir þá sem hafa gaman af þessháttar efni. Í vikunni var ung stúlka spurð hvaða annað tungumál en færeyska væri opinbert tungumál í Færeyjum? Íslenska svaraði hún að bragði! Mér finnst að hún hefði átt að fá prik fyrir það!
Báðar sjónvarpsstöðvarnar gerðu úttektarskýrslunni um Orkuveitu Reykjavíkur góð skil. Stöð tvö þó öllu betri í fréttum og sérstaklega ef tillit er tekið til þess að ríkisfréttastofan hefur margföldu starfsliði á að skipa miðað við Stöð tvö. Ríkissjónvarpið bætti fréttirnar vissulega upp með ágætri umfjöllun um málið í Kastljósi.
Kjarni þessa máls er sá að mikið af ógæfu Orkuveitu Reykjavíkur má rekja til þess að fyrirtækinu stjórnuðu stjórnmálamenn sem kunnu ekki að reka orkufyrirtæki og báru ekkert skynbragð á rekstur af þessu tagi og flókin fjármál. Rifrildi á stjórnarfundum var greinilega einskonar smækkuð mynd af rifrildinu í borgarstjórn. Þessir menn vissu greinilega lítið hvað þeir voru að gera og því fór sem fór. Rekstur þessa mikilvæga og áður gullmalandi fyrirtækis var ævintýralegt rugl þegar verst lét. Og ekki bætti hringlið í borgarstjórninni úr skák þar sem hver meirihlutinn öðrum verri rak annan.
Af mbl.is (12.10.2012: Einn var fluttur á slysadeild eftir að hafa verið stunginn með skæri eða hníf í Bankastræti skömmu fyrir eitt í nótt ... Ef það hefði komið í hlut Molaskrifara að skrifa þessa frétt hefði hann sagt að maðurinn hefði verið stunginn með skærum eða hnífi ekki skæri eða hníf …
Morgunstund í vikunni hlustaði Molaskrifari um stund á einn af símavinum Útvarps Sögu úthúða ÍNN sjónvarpinu og Ingva Hrafni Jónssyni. Pétur símstjóri þagði að venju. Þetta var svo sem ekkert skemmtilegt, en það fyndna var að allir skammirnar um ÍNN áttu enn betur við um Útvarp Sögu!
Undarlegt klúður var við útsendingu seinni frétta Ríkissjónvarps á miðvikudagskvöld (10.10.2012). Þá birtist svohljóðandi texti á skjánum:
,,Vegna bilunar í tækjabúnaði verður veðurfréttatími sýndur kl. 22 00 og seinni fréttatími sjónvarps eftir veðri”. – Vonandi hefur viðrað vel í Efstaleiti.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
13/10/2012 at 17:22 (UTC 0)
Kærar þakkir, Jóhann. Fréttablaðið getur skrifað nýja frétt um veikindi læknanna!
Jóhann Sigurjónsson skrifar:
13/10/2012 at 15:42 (UTC 0)
Sæll Eiður.
Oft hefur mig langað til þess að senda þér línu og læt nú verða af því.
Tilefnið er forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag 13. október.
Í myndatexta stendur: „Gígja Thoroddsen byrjaði að mála og teikna eftir að læknar sendu hana í þrettán raflostsmeðferðir vegna veikinda sinna…“
Gaman væri að vita hvaða veikindi hrjáðu læknana.