Forsetningin vegna tekur með sér eignarfall. Í RÚV var enn einu sinni sagt í morgun ,,vegna lagningu vegar“. Það er rangt. Hið rétta er að segja vegna lagningar vegar. Hægt er að leggja bæði vegi og hár. Endur fyrir löngu er ég sat á Alþingi man ég að fundum var hætt óvenju snemma tiltekinn dag því þingveislu skyldi halda um kvöldið. Ég spurði þingbróður úr Alþýðubandalagi hvort ekki hefði mátt funda lengur fram eftir deginum. Nei, svaraði hann. Ólafur Ragnar verður að komast í lagningu ! Svo hlógum við báðir.
Í Útvarpi Sögu var sagt ,,að Búnaðarbankinn hefði skipt um eigendur“. Þetta finnst mér ekki hljóma rétt. Bankinn er enginn gerandi þegar eigendaskipti eiga sér stað. Eðlilegra hefði mér fundist að segja að eigendaskipti hafi orðið á Búnaðarbankanum. Þetta kann þó að orka tvímælis og vera sérviska mín. Kreppan hefur haft í för með sér að hlutabréfaviðskipti eru úr sögunni um sinn, að minnsta kosti.. Þessvegna er maður sem betur fer hættur að sjá að hlutabréf hafi ,,skipt um hendur“ eins og var svo algengt hér áður fyrr. Megi sú ambaga hverfa fyrir fullt og allt.
Tekið var svo til orða í RÚV í morgun að eitthvað væri ,,í fyrra fallinu“. Þetta er ekki það orðalag sem ég er vanur. Mín málkennd er að hér eigi að vera forsetningin með eða á , – eitthvað verður með seinna fallinu, eða að hafa fyrra fallið á einhverju. Hér er vísað til sjávarfalla, sbr. Merg málsins (Dr. Jón G. Friðjónsson) þar sem segir:,,Líkingin er dregin af af því að sjómenn urðu að sæta sjávarföllum við sjósetningu eða landtöku báta, þ.e. bíða árdegis- eða síðdegisflóðs.“ Fæstir hugsa líklega til upprunans, þegar þeir nota þetta orðatiltæki.
Hún er ekki upp á marga fiska móðurmálskunnátta blaðamannsins á Vefmogga sem skrifar í dag frétt um breskan þingmann. Í fyrirsögn segir, að þingmaðurinn hafi orðið ,,uppvís af kynlífshneyksli.“ Á auðvitað að vera uppvís að kynlífshneyksli. Þá er sagt , að þingmaðurinn hafi líklega ,,setið á sumbli“. Aldrei heyrt það orðalag. Hinsvegar er talað um að sitja að sumbli, sitja að drykkju en sumbl er drykkjuveisla. Svo fleira sé tínt til þá er sagt að konan ,sem kemur við sögu í fréttinni ,hafi verið,,í sokkaböndum“. Kannski er sá sem skrifaði fréttina svo ungur, að hann veit ekki hvað sokkabönd eru og heldur að sökkabönd séu flík.
Í tíufréttum RÚV sjónvarps í kvöld las fréttaþulur:,,…formaður undrar sig á..“ Hér ruglaði fréttaþulur saman að furða sig á einhverju og að undrast eitthvað. Fréttamaður sem flutti fréttina hafði þetta hinsvegar rétt og sagði formann undrast.
Ekki get ég sagt að ég hlusti mikið á Útvarp Sögu. Kemur þó fyrir og þá hlusta ég helst á Sigurð G. Tómasson,sem er einn af okkar bestu útvarpsmönnum. Sigurður er sjór af fróðleik á mörgum sviðum og einstaklega vel máli farinn. Ekki horfi ég heldur mikið á sjónvarpsstöðina ÍNN. Þátttakendur í spjallþáttum þar sitja oft við svo forljótan bakgrunn að með ólíkindum er , en auðvitað hefur hver maður sinn smekk.Þótt mér þyki þetta ljótt, þykir þeim á ÍNN þetta líklega forkunnarfagurt. Það sem mestu ræður um að ég hlusta ekki eða horfi á þessar tvær stöðvar er sú staðreynd að maður veit ekki hvort maður er að fylgjast með viðtalsþætti þar sem kaupandi útsendingartíma velur spyril, spurningar og efni.Um þetta fá áheyrendur/áhorfendur ekkert að vita. Þetta er brot á grundvallarreglum blaðamennsku. Þetta rifjar einhverra hluta vegna upp fyrir mér heiti bókar , – um blaðamennsku – sem ég las einu sinni og heitir á ensku ,,Electronic Whorehouse“. Ég sleppi því að þýða titilinn.
7 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
24/03/2009 at 17:34 (UTC 0)
Kærar þakkir fyrir jákvæð ummæli. Ómar, – kíktu á Mola XXII – ESG
Ómar Ragnarsson skrifar:
24/03/2009 at 17:04 (UTC 0)
Það er ekki bara að Búnaðarbankinn geri þetta og geri hitt. Allur fjandinn opnar þetta og opnar hitt.
Skíðasvæðið, verslunin og húsið opnar. Hvernig getur svæði opnað? Hvað er það sem svæðið opnar?
Síðan versla menn allan fjandann, versla bíl, versla jakka og versla skó, eða þá að þeir „versla sér“ eitthvað.
karl skrifar:
24/03/2009 at 15:44 (UTC 0)
Kærar þakkir fyrir þessa áhugaverðu umfjöllun um íslenskt mál.
Ég hef búið í nokkrum löndum og fylgst náið með fjölmiðlum þar.
Ég fullyrði að hvergi á Vesturlöndum sér maður aðra eins meðferð á málinu og í íslenskum vefmiðlum og dagblöðum. Ég fullyrði einnig að hvergi á Vesturlöndum er boðið upp á sjónvarpsfólk sem er svo illa máli farið sem hér.
Ég treysti mér reyndar til að fullyrða að íslenskir fréttamiðlar séu þeir lélegustu sem reknir eru á vesturhveli jarðar. Það á bæði við um hina faglegu hlið og málfarið.
Metnaðarleysið er algjört og hrein hörmung hvernig blöð á borð við Morgunblaðið hafa verið leikin á undanförnum árum.
Heimir Tómasson skrifar:
24/03/2009 at 13:53 (UTC 0)
Takk fyrir þessa mola. Ég les þetta reglulega, mín málfarskunnátta er aðeins á undanhaldi (bý erlendis) en reyni hvað ég get að halda henni við. Svona pistlar eru ómetanlegir. Takk.
Benedikt skrifar:
24/03/2009 at 08:24 (UTC 0)
Í textavarpi RÚV í gær var sagt frá einhverjum ógæfumanni í Noregi (frekar en Svíþjóð) sem hafði framið þrefalt morð. Er ekki eitthvað bogið við það? Í fréttinni sjálfri mátti svo lesa að hann hefði orðið þremur manneskjum að bana.
Steini Briem skrifar:
23/03/2009 at 23:20 (UTC 0)
Í rafvæddu hóruhúsi,
húsbóndi var hann Krúsi,
í sokkaböndum og búsi,
borgarstjóri í rúsi.
Sæmundur Bjarnason skrifar:
23/03/2009 at 23:04 (UTC 0)
Takk fyrir að standa vaktina. Íslenskt mál er auðlind sem við eigum ekki að láta bögubósa eyðileggja. Það er mörg vitleysan í fjölmiðlum og vissulega þarft verk að benda á það.