Það var svolítið sérkennilegt hvernig Framsóknarformaðurinn varpaði órökstuddri hræðslusprengju inn í umræðurnar í gær og tókst þannig að láta umræðuna snúast talsvert um sig daginn fyrir kosningar. Þetta var greinilega gert í örvæntingu,en ekki held ég að það hafi skilað miklum árangri. Þetta mál snýst ekki um að leyna almenning einhverju sem skiptir máli. Það snýst um að vernda hagsmuni heildarinnar með því að tryggja rétt aðgengi á réttum tíma að upplýsingum sem skipta þjóðarhag miklu. Það snýst um að gæta jafnfræðis í viðkvæmu og erfiðu máli. Mér fannst þau Steingrímur og Jóhanna ekki segja þetta alveg nógu skýrt í umræðum formannanna. Lýðskrum Borgarahreyfingarinnar í formannaþættinum í kvöld var með ólíkindum, en reynslan sýnir að skrumflokkar af þessu tagi geta laðað að sér óánægjufylgi, sem heldur alltaf að lausnin felist í nýjum flokkum.
En er ekki leyfilegt að spyrja: Gengur það ekki þvert á allt sem Borgarahreyfingin er að segja kjósendum að Þráinn Bertelsson,sem, líklega fer nú inn á þing skuli lýsa því yfir að hann ætli sér að halda heiðurslaunum listamanna, sem þessi fyrrverandi gallharði allaballi hlaut fyrir pólitískan tilverknað Framsóknarflokksins ? Þingmennska er fullt starf sem er prýðilega launað . Þetta er einkennileg tvöfeldni sem sumir mundu kalla hræsni. En líklega er Þráinn bara að stríða þjóðinni. Er það ekki öruggt ?
Mér finnst að barnabókahöfundurinn Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi flokkssystir Þráins, ætti að taka sæti hans í heiðurslaunaflokknum. Það er löngu tímabært. Þráinn hefur ekkert með heiðurslaun að gera meðan hann situr á Alþingi, verði hann kjörinn. Auðvitað á hann að sjá sóma sinn í að afþakka launin.
5 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
26/04/2009 at 23:08 (UTC 1)
Sigurður Þór. —- Man ég það ekki rétt að þú hafir lýst konu þannig að hún … væri löng og mjó eins og Vesturgatan á Akranesi.“ Þetta kemur mér ævinlega í hug, er ég keyri Vesturgötuna.
Jón Óskarsson skrifar:
26/04/2009 at 18:18 (UTC 1)
Eiður.
Þar sem ég er svolítið kunnugur mönnum úr þessum hópi þá er það staðfest að Þráinn var aldrei félagsmaður í Alþýðubandalaginu.
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
26/04/2009 at 11:43 (UTC 1)
Auðvitað á sama regla að gilda um ÞB og aðra opinbera starfsmenn. Laun frá ríkinu eða ríkisfyrirtækjum dragast frá greiðslum úr ríkissjóði. Er ekki Borgarahreyfingin sífellt að tala um jafnrétti þegnanna? Heiðurslaun eru bara eins og hver önnur laun. Ef Friðrik Þór eða einhver annar góður og gegn kvikmyndagerðarmaður hefði verið í Framsóknarflokknum, hefði hann fremur átt að fá verðlaunin. – Jón Óskarsson, – hefði Þráinn verið dubbaður upp í ritstjórastöðu ef hann hefðui ekki verið allaballi ? Öldungis ekki
Sigurður Þór Guðjónsson skrifar:
25/04/2009 at 11:28 (UTC 1)
Heiðurslaun eru viðurkenning á unnum verðleikum, ekki starfslaun, heldur heiður, eins konar verðlaunapeningur. Þegar einhver listamaður hefur verið settur í heiðurslaunaflokk er hann ekki tekinn af honum. Menn geta afsalað sér launum en menn afsala sér ekki áunnum heiðri. Geta menn ekki skilið þetta.
Jón Óskarsson skrifar:
25/04/2009 at 00:09 (UTC 1)
Bara ein leiðrétting.
Þráinn Bertesson var aldrei verið félagsmaður í Alþýðubandalaginu.
Þessi misskilningur á sínar rætur í því að fyrrverandi flokksbróðir hans úr Framsókn, Ólafur nokkur Grímsson, réð Þráinn til að ritstýra Þjóðviljanum.
Það var hluti af herkænsku Ólafs til að drepa blaðið. Og það tókst.