«

»

Er Ísland réttarríki?

 

Grein sem birtist í Morgunblaðinu  í dag , 23. ágúst 2013.

 

ER ÍSLAND RÉTTARRÍKI?

 

Búum við í réttarríki? Er Ísland réttarrríki? Mig óraði ekki fyrir að ég þyrfti að varpa þessari spurningu fram í blaðagrein. En nú er spurt að gefnu tilefni.

Greint var frá því í  fréttum fyrir síðustu helgi, að  framkvæmdir væru hafnar  við gerð nýs Álftanesvegar eftir endilöngu Gálgahrauni ,sem er friðað eldhraun á náttúruminjaskrá.

Það voru engar myndtökur, skálaræður eða blaðamannafundir þegar samningar voru undirritaðir og verkið hafið. Það var eiginlega gert í skjóli nætur. Myrkraverk, sem   Vegagerð ríkisins og bæjarstjórnarmeirihlutinn í Garðabæ  standa að í sameiningu.

Þessi framkvæmd er  umdeild, enda er um óþörf og óafturkræf náttúruspjöll að  ræða í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Fern umhverfisssamtök  hafa því höfðað mál gegn  vegamálastjóra  til viðurkenningar á því að framkvæmdin sé ólögmæt. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur  18. júní 2013. Þessi samtök eru: Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir, – allt almannasamtök á sviði náttúruverndar. Verksamningur  var  undirritaður eftir að málið var höfðað og  framkvæmdir hafnar eftir að málið var höfðað. Það sýnir offorsið sem einkennir þetta mál allt.   Hér ganga opinberir aðilar fram  af ótrúlegri óbilgirni, , – ósvífni, –  og valta yfir borgarana,  almannasamtök sem láta sig náttúrvernd varða.    Í þessu máli  er farið á  svig  við lög og reglur með þjösnalegri valdbeitingu gegn þegnunum.

 

 Ólögmæt framkvæmd

Þessi framkvæmd er ólögmæt  af tveimur ástæðum eins og skýrt kemur fram í  stefnu þeirra fernra  umhverfissamtaka sem að ofan er getið.

Í fyrsta lagi er framkvæmdin ólögmæt vegna þess að það umhverfismat sem fyrir liggur  er ellefu  ára gamalt og er mat á allt annarri framkvæmd en þeirri sem nú er hafin. Umhverfismatið stenst því ekki lög. Þessvegna ber að stöðva þessa framkvæmd.

Í öðru lagi er ekkert gilt framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni. Framkvæmdaleyfi sem Vegagerðin styðst við var gefið út árið 2009 og fellur úr gildi lögum samkvæmt hefjist framkvæmdir ekki innan árs. Engar framkvæmdir hófust innan þess tíma. Vegagerðin  og Garðabær hengja hatt sinn á það að framkvæmdir við veg eftir Gálgahrauni endilöngu hafi hafist með gerð hringtorgs við Bessastaðaveg. Það er út í hött og sýnir ótrúlegan valdhroka stjórnvalda. Hringtorgið og rúmlega  200 metra vegarspotti  var inni á  yfirráðasvæði annars  sveitarfélags og  getur  því  ekki með neinum hætti tengst  framkvæmdaleyfi Garðabæjar. Garðabær hafði ekkert með málefni Álftaness að gera þegar framkvæmdaleyfið var gefið út . Þessvegna er það lögleysa að  segja  gerð hringtorgsins upphaf vegagerðar um Gálgahraun.

 

 

  Mikið í húfi

Á fjölmennum borgarafundi ,sem Hraunavinir efndu til í safnaðarheinmili Vídalínskirkju 29. nóvember síðastliðinn  sagði Ómar Ragnarsson,  nátttúruverndarfrumkvöðull: ,,Ef við getum ekki bjargað þessu hrauni hér í  hjarta þéttbýlisins, getum við  ekki bjargað neinu í náttúruvernd hér á landi”. Það eru orð að sönnu.

 

Ráðamenn, ráðherrar, hafa  hér  brugðist,  hver á  fætur öðrum, og láta yfirganginn  viðgangast. Ögmundur Jónasson óskaði eftir fresti, sem fyrirfram var líklegt að ekki mundi skila neinu. Sú varð og raunin. Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi ráðherra vill ekkert gera.  Vegagerðin og Garðabær fara sínu fram. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra gerði ekkert í málinu  og bar við valdþurrð. Hún hefði getað  stöðvað málið. Hún hefði  getað beint   tilmælum  til málsaðila um að láta fara fram nýtt umhverfismat. Ekki væri boðlegt við jafn mikilvæga framkvæmd að styðjast við  meira en tíu ára gamalt umhverfismat, enda nú um allt aðra framkvæmd að ræða en gamla matið miðaðist við. Heldur væri ekki  hægt að vísa til  framkvæmdaleyfis sem væri fallið úr gildi.

Það er mikið í húfi, en fyrst og fremst er þetta löglaus  framkvæmd og þessvegna hefur mál verið höfðað til að stöðva hana.

 

Þetta mál snýst um margt.

Það snýst um náttúruvernd, óafturkræf  skemmdarverk á náttúruperlu í hjarta  mesta þéttbýlis á Íslandi.

Það snýst um siðferði og trúverðugleika opinberra stofnana  einsog Vegagerðar ríksins og  kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem mynda meirahluta í bæjarstjórn Garðabæjar.

Það snýst um það hvort opinberum aðilum eigi að leyfast að fara á svig við lög og reglur með útúrsnúningum.

Það snýst um  mátt almannasamtaka  sem starfa á sviði náttúruverndar á Íslandi.

Fyrst og síðast snýst þetta mál þó um það hvort við Íslendingar búum í réttarríki eða einhverskonar bananalýðveldi þar sem  hið opinbera og fulltrúar þess stjórna með geðþóttaákvörðunum og lúta ekki lögum. Það er kjarni málsins og á það  er nú látið reyna  fyrir  dómstólum.

 

Eiður Svanberg Guðnason.

Höfundur er fyrrverandi umhverfisráðherra.

 

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Kærar þakkir, Egill. Birti þetta eftir helgina. K kv Eiður

  2. Egill Þorfinnsson skrifar:

    Sæll Eiður,
    Sammála er ég grein þinni frá því í gær en víkjum að öðru.
    Þessi fyrirsögn var á mbl.is í gær föstudag „Umdeild skilaboð Dr. Phil“.
    Síðan stendur í greininni „Fylgjendur Dr. Phil á Twitter brá í brún……..“.
    Fylgjendur brá í brún??????
    Ég hallast nú frekar að því að fylgjendum hafi brugðið í brún.
    Kv, Egill

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>