Ebólan er að sigra kapphlaupið, sagði í fyrirsögn á mbl.is (15.01.2014) http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/10/15/ebolan_er_ad_sigra_kapphlaupid/ Það sigrar enginn kapphlaup. Það sigrar enginn keppni. Þetta ættu þeir sem skrifa fréttir að hafa á hreinu, hafa rétt. Í Morgunblaðinu á miðvikudag (15.10.2014) sagði í frétt á bls. 4: Þau Svandís, Unnur Brá, Ragnheiður og Vigdís sitja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Ætti að vera: Þær Svandís, Unnur Brá, Ragnheiður og Vigdís sitja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Á bls. 13 í sama blaði segir: Fjögur ummæli voru dæmd dauð og ómerk, .. Hefði átt að vera: Fern ummæli voru dæmd dauð og ómerk,.. … Önnur svolítið samkynja fyrirsögn á mbl.is sama dag: Bryndísi sárnar ummæli Brynjars. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/10/15/bryndisi_sarnar_ummaeli_brynjars/ Bryndísi sárna ummæli Brynjars, ætti þetta að vera. Sjónvarpsmaður sendi mér þessa athugasemd á fésbók (15.10.2014). ,,Verð að játa að málfarið vefst svolítið fyrir mér. En sennilega er þetta ekki hrós: ,,Helgi Seljan Alþýðlegt fyrir Eiði, er að sitja af sér nokkur ár þingi; hvert hann flaut á bökum verkafólks.” Miklar kröfur eru gerðar til móðurmálskunnáttu hjá Ríksútvarpinu nú um stundir.,,Alþýðlegt fyrir Eiði”??? ,,Sitja af sér nokkur ár á þingi ”.???. Bara skemmtilegt,segir Molaskrifari. Af baksíðu Morgunblaðsins 16.10.2014:,, .. en Alexandra mun einmitt dvelja í 17 daga í Kína.” Molaskrifari lærði það nokkuð snemma í blaðamennsku að sögnin að dvelja þýðir að tefja, hindra eða draga á langinn. Hvað dvelur Orminn langa? Hér hefði að mati Molaskrifara farið betur á því að tala um að dveljast, – að vera staddur eða hafast við einhversstaðar. Næstu Molar á mánudag. Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
19/10/2014 at 14:37 (UTC 0)
Kærar þakkir, Eirný.
Eirný Vals skrifar:
18/10/2014 at 14:13 (UTC 0)
Sæll,
Nú er langt síðan ég hef skotið að þér mola.
Í morgun las ég frétt á vef Morgunblaðsins og skemmti mér.
sölukona KYNNTI FÓLK FYRIR rússnesku elgskjöti – þar hló ég, voru elgirnir lifandi, hvers vegna var verið að kynna fólkið?
skelfiskur hefur þurft að hverfa frá Rússlandi – ég skemmti mér og sá skelfisk yfirgefa landið, myndrænt
Tók af vef mbl.is kl. 13.12 laugardaginn 18. október.
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2014/10/17/raudrofusupa_elgskjot_og_ponnukokur/