Svo er að sjá sem forseti Íslands og Morgunblaðið séu komin í sameiginlega herferð gegn aðild Íslands að Schengen. Er ekki Útvarp Saga í sama liði?
Bandaríkjamenn segja ,,Politics makes strange bedfellows”, sem útleggst lauslega: Í pólitíkinni verða til undarlegir rekkjunautar, – eða undarlegasta fólk sængar saman í pólitík.
Auðvitað er Schengen-kerfið ekki gallalaust og þarf að bæta, eins og berlega hefur komið í ljós að undanförnu. En þegar Morgunblaðið og þjóðhöfðinginn ( sem ætti ekki að blanda sér í þessa umræðu) nota það sem rök, að Bretar séu ekki í Schengen og Bretar byggi eyju eins og við, og þess vegna þurfum við ekkert á Schengen að halda, þá er verið að afvegaleiða umræðuna og villa um fyrir fólki.
Bæði Morgunblaðið og ÓRG láta þess rækilega ógetið, að Bretar eru með öflugustu leyniþjónustu allra ESB landanna. Við landamæravörsluna eina, vegabréfaeftirlit starfa hátt í 25 þúsund manns og er þá ógetið öryggisþjónustunnar MI 5 sem starfar innanlands og MI6 sem aðallega annast, njósnir og upplýsingaöflun erlendis.
Athugun vegabréfa ein og sér segir ekki nokkurn skapaðan hlut. Það er aðgangurinn að gagngrunni og samstarfi Schengenríkjanna sem skiptir máli.
Eru forsetinn og Moggi að tala fyrir því að fjölgað verði starfsmönnum við landmæravörslu hjá okkur um nokkur hundruð eða þúsund manns og að komið verði á fót öflugri leyniþjónustu á Íslandi? Er það vilji Ólafs Ragnars Grímssonar og stjórnenda Morgunblaðsins? Ef svo e,r á bara að segja það hreint út. Annars er þessi umræða bara bull út í bláinn til þess eins að villa um fyrir fólki og afvegaleiða umræðuna.
Skildu eftir svar