«

»

Vitur eftir á

   

  Þegar þeim  sem þetta ritar var skipað  í flokk  sendiherra íeldri kantinum“ ,sem  væru orðnir of margir,  eins og  sagt var úr ræðustóli Alþingis, var   honum svona sæmilega kurteislega  þrýst til að hætta  ellefu  mánuðum fyrir sjötugt  og  fékk  við starfslok greitt  sex vikna ótekið sumarleyfi. Enginn starfslokasamningur þar.

  Ef ég hefði hinsvegar haft  vit á að standa í vafasömum  hlutabréfaviðskiptum væri ég kannski enn á launum hjá ríkinu.  En þetta er allt í góðu lagi. Ég nenni eiginlega ekki að hugsa um þetta lengur og er í ljósi aðstæðna prýðilega sáttur. En svona getur maður verið rosalega  vitur eftir á !

 

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Hörður B Hjartarson skrifar:

        Eiður !

        Vil bæta því við , að það er einnig mín eindregin skoðun , að þingmönnum eigi að fækka um helming , og þeir eiga að stimpla sig inn í þá vinnu .

  2. Hörður B Hjartarson skrifar:

        Eiður!

        Takk fyrir svarið , en að vísu munum við væntanlega seint verða sammála um „nauðsyn“ sendióráðanna , kannski á það einnig við um ráðherrafjölda hverju sinni , ég vil sjá þá tölu fara annað hvort í sjö eða fimm , föst laun þingmanna svo og ráðherra burtséð í hve mörgum nefndum , eða ónefndum þeir sitja,en þér til fróðleiks voru þingnefndirnar snemma á árinu 2002 níuhundruðogþrjátíu , en guð  má vita hver fjöldi þeirra er í dag , heldur þú þær séu ekki allar , hver og ein , bráðnauðsynlegar ? Væntanlega kostar svona „vit“ eitthvað okkur íslendinga .  

  3. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

    Auðvitað er það svo…

  4. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

    Hörður,  Auðvitar það svo að ekki bara má, heldur á, að taka til í sendiráðum eins og  annarsstaðar. Það hefur verið gert og er verið að gera. Sendiráðum og sendiskrifstofum hefur verið lokað , starfsfólki fækkað. Þótt ég sé hættur  störfum í utanríkisþjónustunni veit ég með vissu að þar er allra leiða leitað  til sparnaðar, en þrátt fyrir allar tækniframfarir  eru sendiráð nauðsynlegur þáttur í starfsemi allra sjálfstæðra ríkja.

  5. Hörður B Hjartarson skrifar:

        Eiður !

        Ég get að vissu marki haft samúð með þér  , – en seg þú mér „“ ekki taka til í sendióráðunum (sérstaklega í ljósi þess að tölvur og fax tæki eru vítt og breytt um jörðu vora , utan biksvörtustu Afríku) , hvað fynnst fyrrverandi frábærum sjónvarpsfréttamanni um þá skoðun mína , og margra annarra ?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>