«

»

Molar um miðla og málfar 189

Molaskrifari las athyglisverða frétt á fréttavefnum AMX um umfjöllun annarra fjölmiðla um hin furðuleg  milljónalán sem Glitnir veitti ungum börnum til kaupa á stofnfjárbréfum í BYR , sparisjóði, (þessum sem sí og æ gortar af fjárhagslegri heilsu).

Samkvæmt því sem AMX skrifar var Viðskiptablaðið  fyrst með þessa frétt  Stöð tvö fjallaði  um málið samdægurs og gat þess rækilega að Viðskiptablaðið hefði flutt fréttina fyrst. RÚV, þjóðarsjónvarpið  flutti þetta sem fyrstu frétt,þennan sama dag, en lét þess rækilega ógetið ,hvaða fjölmiðill hefði verið  fyrstur með fréttina. RÚV skreytti sig með stolnum fjöðrum eins og AMX   segir.  Ekki verður betur séð, þó skal ekki fullyrt,  að þetta sé brot á siðareglum blaðamanna. Allavega er þetta brot á mannasiðum og hroki.  Svo ein spurning: Hvaða  erindi átti tilgangslaust rölt  fréttamanns Rúv yfir götu  inn í fréttina?  Og að  endingu: Fréttamaður Rúv talaði um fleiri, fleiri milljónir. Það er  langt síðan Molaskrifara var kennt að svona orðalag  væri  ekki boðlegt.  Þar að  auki  eru þetta  óvönduð  vinnubrögð Hvað eru fleiri, fleiri milljónir margar milljónir  margar milljónir að mat fréttastofu ríkisins?  Fimm, tíu, fimmtán, tuttugu , eða hvað ?   Og  svo mál líka  spyrja:   Fleiri en hvað?  Þeir sem  svona  vinna   og  svona tala eiga ekkert  erindi á  fjölmiðil,sem vill vera vandur að  virðingu sinni.  

  Í sex fréttum  RÚV (31.10.2009) var talað um sýnarannsóknir og sagt niðurstöður  í sýnum. Venjulegra málfar, þegar verið er að rannsaka sýni til að komast að rót eða orsök sjúkdóma, er að tala um niðurstöður úr sýnum.  

 

 

   Í tónlistarþættinum Bláar nótur í bland í RÚV (31.10.2009) , var fjallað um tvo fiðlumeistara jassins, þá Svend Asmundssen og Stephane Grappeli. Um þá félaga var sagt í þættinum að þeir hefðu á sínum tíma verið hæst skrifuðustu fiðluleikarar jassheimsins. Hér hefði átt að segja hæst skrifuðu, ekki hæst skrifuðustu. Í þættinum var leikið hið undur fallega lag, þeirra Fats Wallers og Andys Razafs, Honeysuckle Rose. Þetta lag er perla. Best  er það þegar Fats Waller spilar það einn og syngur. Skil ekki af hverju umsjónarmaður þurfti að kalla lagið númer. Númer hvað?  

 

 

 Ýmislegt athugavert var í íþróttafréttum RÚV sjónvarps (31.10.2009) Þar var t.d. talað um 52 keppnir. Molaskrifari á alltaf erfitt með sætta sig við fleirtölunotkun þessa orðs. Kannski er það sérviska. Betra hefði honum þótt að heyra talað um 52 kappleiki. Síðan var talað um allan ágóða leiksins. Eðlilegra hefði verið að tala um allan ágóðann af leiknum.  Leikurinn græddi ekkert.  

 

Í íþróttafréttatímanum var einnig talað um  ökukeppni, svo kallaða  formúlu,  ( sem RÚV hefur alveg sérstakt dálæti á) og  tekið svo  til orða að rétt fyrir tímatökuna hefði byrjað að rigna á brautinni (svo!) í Barcelona, en það varð til þess að hún varð mjög blaut.  Það rigndi hressilega og það varð til þess að brautin varð mjög blaut! Það var auðvitað nauðsynlegt fyrir okkur  hlustendur að skýra það út að brautin hefði orðið blaut í rigningunni. Svo skyni skroppnir sem við upp til hópa erum.   

 

PS Getur einhver snillingur skýrt fyrir Molaskrifara hversvegna greinaskil falla  út  þegar ég flyt  skjal  skrifað  í Word  yfir á  bloggið? Þetta gerist stundum og  stundum ekki.   

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

     Þakka þér hollráðin, Jóhanna.

     Þetta  svínvirkar  eins og  sagt er á  tímum   svínaflensu!

    Ég er sammála þér,  Sigurður Hreiðar. Barnalán er  fallegt orð vegna þess að  er svo jákvætt og innihaldsríkt. Þetta  með  lán til  barna úr  bönkum með þessum  hætti jaðrar við að vera barnaklám, svo ég sé nú svolítið grófur.

    Kannnski er ráð að hella  málfarsathugasemdum eins og innihaldi skólpfötu ( það orð er líklega ekki ekki mikið í brúki lengur) yfir hina  nýju rtstjóra blaðsins.

    Til fimmta valdsins:  Tek undir það að þessi frétt er  skelfileg og til skammar  fyrir Morgunblaðið. Fjólurnar  dafna vel  undir  nýrri  ritstjórn.

  2. Fimmta valdið skrifar:

    Ég stenst ekki mátið að senda þér þessa slóð á „frétt“ mbl.is um að skotið hafi verið á norskt herskip á Aden-flóa: http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/11/01/skotid_a_norskt_herskip/.

    Hér er komin í hnotskurn megin ástæða þess að ég sagði upp áskrift minni að Mogganum á sinni tíð. „Blaðamanni“ tekst að banga saman þvílíkum endemum af stafsetningarvillum, málfarsvillum, þýðingarvillum og yfirgripsmikilli vankunnáttu um viðfangsefni sitt, að augljóst er að blaðinu hefur a.m.k. ekki farið fram að þessu leyti eftir ritstjóraskiptin.

  3. Jóhanna Geirsdóttir skrifar:

    Ef ýtt er einu sinni á Shift og Enter samtímis koma skilyrðislaus línuskil.
    Ef ýtt er tvisvar á Shift og Enter kemur auð lína.

  4. Sigurður Hreiðar skrifar:

    Las líka um þessar undarlegu lánveitingar til barna undir sjálfræðisaldri. Í Mogganum var þetta kallað barnalán.

    Ný merking í annars fallegu orði, að mínu viti.

  5. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

    Tvær:  leiðréttingar; margar milljónir er tvítekið  og i vantar þar sem á  að standa   mati.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>