Dapurlegt er að sjá hvernig samflokksmenn og samherjar Þorsteins Pálssonar ráðast nú að honum með aðdróttunum og stóryrðum fyrir það eitt að hafa tekið sæti í samninganefndinni um aðild okkar að ESB. Þeir skammsýnu og hugumlitlu menn, sem þetta gera, ættu miklu frekar að fagna setu Þorsteins í nefndinni. Að honum er mikill fengur. Enginn frýr honum vits og enginn grunar hann um græsku.
Víðsýni, greind og sanngirni Þorsteins eru okkur gott veganesti í þessar viðræður, en það er ofvaxið skilningi sumra, sem áður gegndu trúnaðarstöðum á vegum Sjálfstæðisflokksins og sjá nú ekki lengra en nef þeirra nær. Sem er stutt. Það gildir sérstaklega um fyrrum forseta Alþingis.
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
14/11/2009 at 13:19 (UTC 0)
Mannasiðir hafa víða verið látnir víkja, Villi. Því er nú verr.
Villi G. skrifar:
14/11/2009 at 13:06 (UTC 0)
Ágæti Eiður. Hvers vegna er þessi ofsafengni málflutningur. Ágætasta fólk er útskúfað úr flokkum, kallað nöfnum einsog þjóðníðingar landsölumenn, landráðamenn eða þaðanaf verra. Nú hefi ég ekki verið sammála Þorsteini Pálssyni um allt. Frá því hann hann birtist mér fyrst sem talsmaður Vinnveitendasambandsins sáluga og til þessa dags. En engu að síður hefur hann birtst mér sem grandvar og heiðarlegur maður. Og hvers vegna þessi ofsi. Hafa mannsiðir látið undan síga í opinberri umræðu???. Kveðja
Hörður B Hjartarson skrifar:
13/11/2009 at 23:48 (UTC 0)
Eiður !
Í það minnsta mætti , og ætti , þessi sturlaði maður að líta sér nær , kannski hann sé svona seinn að komast á breitingaskeiðið , eða Hallgerður orðin svona erfið , eftir öll árin með honum , ja eitthvað er það .