Margt athyglisvert kom fram í fróðlegu og skemmtilegu samtali þeirra Styrmis Gunnarssonar og Hallgríms Thorsteinssonar í þættinum „Í vikulokin“ á Rás eitt (21.11.2009). Eitt var þó skrítið við umræðuna: Ekki var minnst einu orði á hvernig staðið var að einkavæðingu bankanna, en þar er rótin að því hversu illa fór og hve fáir menn gátu sett íslenska þjóðfélagið á hliðina. Við komumst aldrei framhjá þeirri staðreynd að hin pólitísku helmingaskipti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að afhenda ríkisbankana sérvöldum skjólstæðingum sínum eru ein megin orsök hrunsins á Íslandi.
Þegar Styrmir Gunnarsson ber ráðningu Davíðs Oddssonar í Seðlabankann saman við ráðningu Geirs Hallgrímssonar, Steingríms Hermannssonar, Tómasar Árnasonar, Jóns Sigurðssonar og Finns Ingólfssonar og segir að þar hafi menn bara verið að fylgja hefð, er það ekki rétt nema að mjög litlu leiti. Enginn þessara manna var umdeildur neitt í líkingu við Davíð Oddsson. Enginn. Það reyndi ekki á neinn þeirra að marki, því við sigldum lygnan sjó. Jón Sigurðsson hafði bankareynslu (hafði lengi setið í bankaráði Norræna fjárfestingabankans og verið fulltrúi Norðurlandanna hjá Alþjóðabankanum) og fór úr Seðlabankanum til að stýra einum öflugasta banka Norðurlanda , Norræna fjárfestingarbankanum.Aldrei hefur heyrst nein gagnrýni á störf hans á þeim vettvangi. Þessi rökstuðningur Styrmis styðst ekki við rök , þegar betur er að gáð.
Styrmir tók Hallgrím hressilega á beinið fyrir að sjá ekkert nema Davíð Oddsson í þessari umræðu. En fjölmiðlamönnum er nokkur vorkunn því Davíð Oddsson er svo sterkur persónuleiki að hvar sem hann fer eða er snýst umræðan um hann. Davíð verður af sjálfu sér miðpunkturinn , meira en nokkur annar maður sem ég þekki. Það er bara þannig.
Það er rétt hjá Styrmi að návígið og smæðin eru meðal helstu vandamála okkar, en ekki nauðvelt að komast undan þeim. Það er hinsvegar grundvallarmisskilningur að almenningur hafi nú aðgang að öllum sömu upplýsingum og kjörnir fulltrúar. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru ágætar um afmörkuð og skýr efni. Það er bara bull að vera með þjóðaratkvæðagreiðslur um mál sem almenningur hefur takmarkaða möguleika á að taka upplýstar ákvarðanir um.
Ágætur fulltrúi utanríkisráðuneytisins átti hinsvegar lítið erindi í umræðuna um þessi mál. Eins og hún sagði sjálf. Hún tók hinsvegar ágætlega upp hanskann fyrir starfsmenn utanríkisþjónustunnar. Auðvitað á að spara og gæta aðhalds í utanríkisþjónustunni eins og annarsstaðar. En við verðum líka að halda reisn okkar og vera þjóð meðal þjóða. Það er hægt að gera án þess að bruðla. Það er mikill misskilningur að Internetið geti komið í staðinn fyrir sendiráð. Það er gott hjálpartæki en kemur aldrei í staðinn fyrir fólk.
Hlakka til að lesa bók Styrmis.
PS Það er svolítið skemmtilegt að gömlu vinirnir og skólabræðurnir Styrmir og Ragnar Arnalds skuli vera orðnir pólitískir samherjar á efri árum í andstöðunni við inngöngu Íslands í ESB!
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Sigurður Sigurðsson skrifar:
21/11/2009 at 17:25 (UTC 0)
Merkilegt hvað þú skautar yfir EES væðinguna sem átti sér stað, að mig minnir, á þinni vakt. Enda eðlilegt að þið kratar viljið sem minnst um hana tala, sennilega er hún einn af þeim þáttum sem leiddu til hrunsins á endanum.
En að Jóni Sigurðssyni, eðalkrata og samflokksmanni og samstarfsmanni þínum til langst tíma: Eiður, ber hann nú ekki svolitla ábyrgð sem bankaráðsmaður Seðlabankans og stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins á þeim tíma sem hrunið verður ?? Mun það koma í ljós að hann og fleiri hafi jafn kröftuglega varað við því ástandi sem upp var komið eins og Davíð ??
Hvernig væri nú að þú bloggaðir aðeins um ábyrgð hans, svo ég tali nú ekki um samstarfið á sínum tíma við Jón Baldvin, ekki var það nú gæfulegt fyrir mann að sjá þann mann eitt kvöldið, starfandi utanríkisráðherra, í kappdrykkju fyrir utan Naustkjallarann á sínum tíma, tala nú ekki um þegar hann henti bjórkrúsinni afturfyrir sig svo að hún splundraðist á Vesturgötunni ??
Hvernig væri að þú upplýstir okkur aðeins um innanbúðarmál ykkar kratanna á sínum tíma og létir af þessari þráhyggju þinni gagnvart Davíð Oddssyni, sem er þó sá stjórnmálamaður sem gersamlega ber af í okkar samtímasögu, og þá sérstaklega í samanburði við ykkur smápeðin, samferðamenn hans á sínum tíma !!!
Haukur Kristinsson skrifar:
21/11/2009 at 16:26 (UTC 0)
Algjörlega ósammála því að Davið Oddsson séu sterkur persónuleiki. Ef hann skyldi verða miðpunkturinn í hverri umræðu, þá er er það mikið Armutszeugnis fyrir þá hina sem viðstaddir eru.
Er staddur erlendis og er að lesa bókina Män som hatar kvinnor, eftir Stieg Larsson á þýsku. Þar er lýsing á Lisbeth Salander sem mér virðist smellpassa fyrir Davíð Oddsson.
Mangel an Emphatie, egoistisch, psychopathisches und asoziales Verhalten, Schwierigkeiten bei der sozialen Zusammenarbeit und Lernunfähigkeit.