«

»

Leikhús fáránleikans við Austurvöll

  Stjórnarandstaðan er búin að breyta Alþingi Íslendinga í leikhús fáránleikans.  Sá sem  þetta ritar trúði  eiginlega hvorki augum né  eyrum, þegar hann sá þingmenn í ræðustóli vælandi um hungur, að  þeir  fengju ekki  fundarhlé til að raða í sig réttunum úr hinu ágæta ( og líklega niðurgreidda) mötuneyti þingsins. Fáránleikanum og fíflaganginum virðast engin takmörk sett. Þið misbjóðið þjóðinni með þessari framkomu.

6 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður Svanberg Guðnason skrifar:

     Þakka  þér ábendinguna Lilja,

    Á vef Árnastofnunar sló ég einhverntíma upp beyginu orðsins stóll til að vera viss. Hún er þar gefin svona:

    EintalaFleirtala
      án greinis með greini   án greinis með greini
    Nf. stóll stóllinn Nf. stólar stólarnir
    Þf. stól stólinn Þf. stóla stólana
    Þgf. stól / stóli stólnum Þgf. stólum stólunum
    Ef. stóls stólsins Ef. stóla stólanna

       Þannig að þágufallið af orðinu  stóll getur verið á hvorn veginn sem  er.  Ef hinsvegar  er spurt um  beygingu orðsins ræðustóll   þá er ekki gefin þágufallsmyndin  ræðustóli, þannig að um það hefur þú rétt fyrir þér.  Sama gildir um prédikunarstól. Þannig  að  þágufallsmyndin stóli  virðist ekki  til í samsetningum þó hún sé  til í orðinu stóll, sbr.  það sem segir  hér að ofan.

  2. Lilja skrifar:

    Aðeins of fljót að senda þetta! Spurning um hvort þágufallið sé ekki ræðustól.

  3. Lilja skrifar:

    Eiður, þú segir …þingmenn í ræðustóli? Er ekki þágufall þessa orðs ræðustóll?

  4. Eygló skrifar:

    Kunningjakonu minni var algjörlega ofboðið:  „Kunna þessir and…. dru…. ekki að panta pítsu? Hlýtur að mega narta í þær í þingsal, eins og að senda sms, lesa blöðin og stara dauflegum augum fram fyrir sig…“

    Þeir verða nú að fá eitthvað í gogginn greyin, gæti komið blóðstreymi til heilans væri það hollustufæða.
    Það varð, líkt og þú skrifar, þvílík móðursýki sem kom upp (kannski af blóðsykurfalli) Hefði mátt bera fram „kók og prins“

  5. Gunnar Skúli Ármannsson skrifar:

    Eiður, ég er ósammála þér.

  6. Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson) skrifar:

    Steini, vinur minn, er ekki sammála þér í þessu efni. Hann lítur á þingmenn sem guðlegar verur sem þurfi ekki að nærast á öðru en því sem fram gengur af munni þeirra sjálfra. Hann segist hafa fastað í tvo daga með góðum árangri árið 1978 og hvetur alla til að gera slíkt hið sama.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>