«

»

Sérkennilegt

Sérkennilegt er,að fréttastofa  Sjónvarpsins skuli ekki greina á milli gamalla og nýrra mynda í fréttum. Í fréttatímum  erlendra stöðva  eru  safnmyndir  merktar sérstaklega  („library pictures“),þegar þær  eru  sýndar,  til aðgreiningar frá  nýjum , áður ósýndum fréttamyndum.

Ríkissjónvarpið  sýnir  okkur  sömu gömlu safnmyndirnar  stundum  tvisvar í sama  fréttatímanum án þess að  geta þess að um  nokkura   daga  eða  vikna  gamlar myndir  er að   ræða. Þetta hefur  verið einkar áberandi í fréttum  af   málum Orkuveitu Reykjavíkur og  fréttum af Kárahnjúkavirkjun.

Það væri heldur til bóta,ef þessu væri breytt.

 

 

 

 

Þetta er  sennilega  ekki það  sem  flokkast undir  fagmennsku, –  eða hvað ?

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Kristín Björg Þorsteinsdóttir skrifar:

    Það má reyndar stundum sjá súb texta hjá þeim sem á stendur „úr myndasafni“. Ekki veit ég þó hvað myndir þurfa að vera gamlar til að fá þann titill

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>