Í hádegisfréttum RÚV (12.01.2010) var talað um að gera eitthvað upp á sitt einsdæmi. Einsdæmi er atburður sem telst einstæður, á sér ekki hliðstæðu. Að gera eitthvað upp á sitt eindæmi er hinsvegar að gera eitthvað af eigin hvötum, einn og óstuddur eða á eigin ábyrgð.
Landlæknisembættið hefur opinberlega varað við því sem kallað er kraftaverkaefni (E. Miracle Mineral Solution/Supplement) og selt hefur verið hér á landi. Þetta á að geta læknað allt, bæði alnæmi og berkla. Eitrunarmiðstöð Landspítalans segir efnið geta valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Þessar viðvaranir eru byggðar á viðurkenndum vísindarannsóknum. Það er þessvegna vítavert ábyrgðarleysi af ráðamönnum Rásar tvö hjá RÚV (13.01.2010) að kalla að hljóðnemanum hómópata sem segir landsmönnum að það sé allt í fína með þetta efni , hún noti það sjálf. Hér var Ríkisútvarpið notað til að gera lítið úr viðvörunum landlæknis og Eitrunarmiðstöðvar Landspítalans, nánast verið að segja að viðvaranir þessara aðila væru markleysa. Er þetta hlutverk Ríkisútvarpsins?
Þegar farið er rangt með staðreyndir í fréttum á að viðurkenna það ,en ekki reyna að fela mistökin. Í fréttum Stöðvar tvö (12.01.2010) um fjölgun hótelherbergja í höfuðborginni var sagt: … í þessum turni sem upphaflega átti að hýsa skrifstofur stendur til að opna nýtt 350 herbergja hótel… Svo kom leiðrétting í lok frétta um að ekki ætti að breyta turninum í hótel ,…. eins og skilja mátti… Þetta var ekki spurning um að skilja. Það var sagt í fréttum að til stæði, eða með öðrum orðum að hefjast ætti handa um að gera þarna 350 herbergja hótel. Þegar fréttamenn gera mistök eiga þeir að viðurkenna það, en ekki beita útúrsnúningum.
Öfgafemínisti skrifar á eyjublogg sitt (12.01.2010) Fyrsta Hitt Femínistafélags Íslands í ár fjallar um konur í sveitarstjórnum. Stefanía Traustadóttir, Þorgerður Einarsdóttir og ég verða með framsögur og svo verða eflaust hressandi umræður eins og venjulega. Hittið hefst kl. 20:00 í kvöld á Gallerý Horninu. Ef ég man rétt skrifaði Þórbergur um að gera hitt og allir vissu hvað hann átti við. Nú virðast öfgafemínistarnir gera enn eina atlögu tungunni með því að kalla venjulegan fund Hitt. Þetta er framúrskarandi hallærislegt, nema auðvitað að fólk sé að gera hitt !
Þegar allt er gert rétt og reglum fylgt þá er of oft notuð hráþýðingin úr ensku eftir bókinni ( e. by the book). Svo var í mbl. is (12.01.2010) er sagt var frá manni ,sem fengið hafði hjartaáfall: ….tekur fram að viðbrögðin hafi verið eins og best verður á kosið og algjörlega eftir bókinni. Þarna hefði alveg nægt að segja að viðbrögðin hefðu verið eins og best varð á kosið. Hvaða bók var þetta annars?
Skrítnir pistlar um tísku fólk og frægð á pressan. is eru engu líkir. Dæmi (11.01.2010):
Húsið er staðsett í Galicia á Spáni. Húsið er eitt stórt steypuferlíki sem er steinklætt að utan. Mikið er lagt upp úr garðinum í kringum húsið sem er hannaður út í hið óendanlega. Ekki er mikið um gróður, fyrir utan gras og stöku tré. Útsýnið úr húsinu er mikið. Þegar inn er komið tekur smart og hlýlegt heimili á móti gestum. Ferkantaðar línur ráða ríkum, bæði í veggjum, innbyggðri lýsingu og innréttingum. – Gerist ekki betra. Nema þá ef til vill þessi setning eftir sama höfund (12.01.2010): Það að vera í hælum gerir mikið fyrir ásjónu hverrar konu.
Skildu eftir svar