«

»

Af kistubotni

„Hér á eftir fara nokkrar spurningar, sem þið og öll vel uppalin börn vafalaust getið svarað játandi.

Stendurðu alltaf upp, ef einhver ókunnugur kemur inn í herbergi ,sem þú situr í ? Já.

 Manstu alltaf eftir að ganga á eftir fullorðnu fólki út og inn um  dyr ? Já.

Stendurðu alltaf upp í strætisvagni eða annarsstaðar ,ef einhvern þér  eldri vantar sæti ? Já .

Varastu alltaf að þrengja þér fram fyrir þá sem á undan þér eru komnir  t.d.  við miðasölur og mjólkurbúðir ? Já.“

Ofangreint er úr   stílabók úr 8 ára B  í Austurbæjarskólanum í Reykjavík   veturinn 1947 til 1948.Kennari var öndvegiskonan Anna  Konráðsdóttir.  Við erum mörg sem eigum henni mikið upp að unna.

Sé að mér hefur ekki mikið farið fram í skrift síðan þá!

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>