Þingmaður Sjálfstæðisflokks líst illa á stöðuna, sagði fréttaþulur í upphafi fréttatíma RÚV klukkan 18 00 (16.05.2010). Nokkuð skortir á máltilfinningu þeirra,sem svo taka til orða.
Það væri til bóta í dagskrárkynningu Ríkissjónvarpsins í blöðum, að þess væri getið hvort ráðgert er að endursýna þætti, eða þáttaraðir, og þá hvenær.
Aldrei kann Molaskrifari við það, þegar talað er um að fyrirtæki hafi farið á höfuðið eða hafi verið sett á höfuðið. Molaskrifara finnst þetta málvöndun á misskilningi byggð. Það hefur alltaf heitið að fara á hausinn, eða að setja á hausinn, þegar fyrirtæki fer í þrot eða er sett í þrot.
Merkilegir þykja Molaskrifara bloggarar , sem endurskrifa fréttir úr mbl.is og birta á blog.is.Það vefst fyrir honum hver tilgangurinn sé. Kannski bara vekja athygli á sjálfum sér. Þetta er auðvitað ein af leiðunum til þess.
Fínn morgunþáttur Sirrýar á Rás tvö (16.05.2010). Inn á milli leynist vissulega ýmislegt bitastætt í dagskrá Rásar tvö.
Hversvegna flytur Ríkissjónvarpið hvað eftir annað auglýsingu sem í er augljós málvilla?Húseigendur: Hugsaðu til framtíðar! Engin gagnrýni. Engin sía. Enginn prófarkalestur. Enginn metnaður.
Úr mbl.is (16.05.2010): Elin Nordegren, eiginkona Tigers Woods, hefur ráðið einn af kunnustu skilnaðarlögfræðinga í Lundúnum….. Hér ætti annaðhvort að standa: Elin Nordegren, eiginkona Tigers Woods, hefur ráðið einn kunnasta skilnaðarlögfræðing í Lundúnum… Eða: Elin Nordegren, eiginkona Tigers Woods, hefur ráðið einn af kunnustu skilnaðarlögfræðingum Lundúna…
…hafi Vinstri grænir mistekist.., sagði fréttaþulur RÚV sjónvarps (16.05.2010). Hefði átt að vera: …hafi Vinstri grænum mistekist.. Í sama fréttatíma var sagt frá vélmenni,sem hefði framkvæmt hjónavígslu í Japan. Þá tók fréttamaður svo til orða: … Hannaði og byggði sérstakt vélmenni fyrir tækifærið… Þetta finnst Molaskrifara slæmt orðalag. Betra hefði verið að segja: Hannaði og byggði sérstakt vélmenni til að annast hjónavígsluna. Það er svo annað mál hvort vélmenn geta vígt.
Úr fréttum Ríkisútvarpsins klukkan 18 00 (16.05.2010): … þótt bændur þurfi mögulega að yfirgefa þær (jarðir sínar) tímabundið. Ekki mögulega , heldur ef til vill.
Skildu eftir svar