Málglöggur lesandi sendi Molum eftirfarandi dæmi úr Fréttablaðinu og Morgunblaðinu:(17.05.2010):….fyrsta mánuðinn voru streymdir 1,5 milljón þátta gegnum iPadinn. Bls.21 Fréttablað, aftarlega í grein.
… en það kallar á sameiningu ráðuneyta og stofnanna. Fréttablað,bls. 15. Báknið burt. Úr skýrslu starfshóps.
DV birtir í sérstökum dálki, sem kallaður er „Dómstóll götunnar“ spurningar,sem lagðar eru fyrir fólk á förnum vegi. Þar er að finna skelfilega fyrirsögn (17.05.2010) Verslar þú af útrásarvíkingum ? Það verslar enginn neitt af neinum. Þetta er argasta ambaga. Þarna ætti að standa: Verslar þú við útrásarvíkinga?
Ýmislegt skrautlegt er að finna á pressan is. Þar er svohljóðandi fyrirsögn (17.05.2010): Sykursætar súkkulaðimúffur með ekta frosting kremi. Til fróðleiks skal þess getið að orðið frosting er enska og þýðir krem. Þetta minnir á manninn,sem kom á bar og bað um Scotch on the rocks. Og bætti við: And put some ice in it, please. Eða: Ég ætla að fá skoskt viský á klaka og settu svolítinn ís í það !
Skildu eftir svar