«

»

Einstæð lágkúra

Þegar Jón Magnússon fyrrverandi þingmaður tveggja flokka, Sjálfstæðisflokksins og  Frjálslynda flokksins  og hæstaréttarlögmaður að auki,  segir að Dagur B. Eggertsson sé  sálufélagi Adolfs Hitlers, þá  rekur mann í rogastans.

  Þegar svo Ólafur Arnarson,hagfræðingur,  sem virðist í fullu starfi við að verja bankabófana, kallar Ólaf  Þór Hauksson   sérstakan  saksóknara,  Óla SS, þá rekur mann aftur í  rogastans.

  Vondan málstað hafa þeir  að verja,sem  þannig  skrifa. Ýmsu erum við  vön í  umræðunni, en þetta er með því allra versta. Þetta er einstæð lágkúra.

   Björn Bjarnason skrifaði í dagbókina á  heimasíðu sinni 16. janúar 2008:  „Umræðum eða deilum lýkur, þegar annar aðilinn tekur að líkja hinum við Hitler og nasista“. Undir þetta skal  tekið og þeir Jón Magnússon og Ólafur Arnarson mættu gjarnan hafa þetta  til hliðsjónar í skrifum sínum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>