Úr dv.is (18.05.2010): Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að ræða sem hann flutti á Alþingi í dag hafi verið snúið á hvolf af fjölmiðlum. Þetta er ömurlegt orðalag. Betra væri: Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir fjölmiðla hafa snúið ræðu sem hann flutti á Alþingi á hvolf.
Í fréttum Stöðvar tvö (18.05.2010) af hollenska bátnum á Seyðisfirði,sem ekki er skúta, var sagt að mastur bátsins væri beyglað. Mastrið var bogið, ekki beyglað.
Dæmigert stofnanamál mátti heyra í sama fréttatíma, þegar talað var um sérútbúið úrræði !
Á fésbókinni talar ágætur þingmaður (18.06.2010) um að hafa byrinn í fangið. Það er ekki auðveltað hafa byrinn í fangið, því byr er meðvindur,leiði.
Í hádegisfréttum RÚV (18.05.2010) var sagt : Strókurinn leggur…. Átti að vera: Strókinn leggur….
Illa gengur fréttamönnum RÚV að greina á milli stjórnarráðsins og stjórnarráðshússins. Í hádegisfréttum RÚV (18.05.2010) var margsagt að ríkisstjórnin væri á fundi í stjórnarráðinu. Stjórnarráðið er samheiti yfir öll ráðuneytin. Hvíta húsið við Lækjartorg þar sem forsætisráðuneytið er til húsa er hinsvegar samkvæmt málvenju kallað stjórnarráðshúsið. Kannski getur málfarsráðunautur skýrt muninn á þessu tvennu fyrir fréttamönnum.
Eftirfarandi ábending er frá Atla Harðarsyni og hafi hann þökk fyrir:
„Á vef Samtaka móðurmálskennara
(http://www.facebook.com/l/d8e56;www.ki.is/?PageID=1217) stendur
orðrétt: „Alls eru fern námskeið í boði fyrir kennara á öllum
skólastigum“ og virðist átt við að boðið sé upp á fjögur
námskeið. Hvert er nú orðið okkar starf?
Fagfélög – Námskeið
Dagskrá Nordspråk fyrir árið 2010 liggur nú fyrir. Alls eru fern
námskeið í boði fyrir kennara á öllum skólastigum, auk
kennaranema.Lesa frétt „. Heldur er þetta ógott og ekki til fyrirmyndar.
Enn eina staðfestinguna fengu áhorfendur Ríkissjónvarpsins á því í kvöld, að íþróttadeildin ræður öllu um dagskrána á þeim bæ. Tveir þættir um knattspyrnu á besta tíma kvöldsins frá klukkan 20 55 til klukkan 22 00. Þetta nær engri átt. Hvers eiga þeir eigendur RÚV að gjalda,sem ekki eru forfallnir fótboltafíklar? Molaskrifari flúði yfir á DR2 þar sem sýnd var athyglisverð heimildamynd um heimsstyrjöldina síðari, eins og hún birtist Bandaríkjamönnum. Heimsstyrjöldin síðari hefur alveg farið fram hjá Ríkissjónvarpinu.
Skildu eftir svar