Úr mbl.is (10.09.2010): Jón Gunnarsson, Bjarni Benediktsson og Unnur Brá Konráðsdóttir kváðu sér einnig hljóðs .. Hér er ruglað saman sögnunum að kveða og kveðja. Að kveðja sér hljóðs er að biðja um orðið eða taka til máls. Kveðja, kvaddi, kvöddum kvatt. Þau kvöddu sér hljóðs. Ræður þeirra kváðu (ku) hafa verið arfaslakar, voru sagðar hafa verið arfaslakar. Kveða, kvað,kváðum, kveðið.
Viðvaningar sinna nú nú fréttaskrifum í vaxandi á mbl. is eins og þetta setningarbrot (10.06.2010) sýnir: …en mikill mannfjöldi var staddur á svæðinu á vegum skemmtiferðaskipsins MSC Poesia. Molaskrifari hefði haldið að fólkið hefði verið farþegar á skipinu en ekki á vegum þess.
Landlæknisembættið hlýtur að grípa til viðeigandi ráðstafana eftir viðtal við lækni á Stöð tvö (10.06.2010) um alvarlegar afleiðingar svokallaðrar detox-meðferðar hjá Jónínu Benediktsdóttur á Miðnesheiði. Fram kom í viðtalinu, að fólk hefur þurft að leita til bráðamóttöku Landspítalans eftir að því var sagt í detox-meðferð hjá Jónínu að hætta að taka lyf, sem læknar höfðu ráðlagt gegn verkjum og háum blóðþrýstingi. Ekki er vitað til þess ,að nokkur læknir leggi nafn sitt við þessar skottulækningar á Miðnesheiðinni. Ef heldur, sem horfir, er það ekki spurning um hvort, heldur hvenær, það kann að leiða til dauðsfalls, að fólki er ráðlagt að hætta lyfjanotkun, sem er að læknisráði. Yfirvöld eiga að stöðva þessa starfsemi áður en hún verður einhverjum að fjörtjóni
Í fréttum Stöðvar tvö (09.06.2010) var sagt frá tveimur telpum ,sem seldu límonaði og góðgæti til styrktar Kattholti. Fallega hugsað og gert. Fréttamaður sagði. …. hafa staðið hér tímunum saman án þess að una sér hvíldar. Eitt er að una einhverju eða una við eitthvað, sætta sig við eitthvað, – annað er að unna sér ekki hvíldar, – gefa sér ekki tóm til að hvílast.
Í íþróttafréttum Stöðvar tvö (10.06.2010) var sagt frá innbroti í hótelherbergi í Suður Afríku. Stolið var tvö þúsund dollurum, en íþróttafréttamaður Stöðvar tvö tók svo til orða, að þjófurinn hefði numið brott tvö þúsund dollara! Auðvitað skildist þetta og reiðareksmönnum um málnotkun þykir þetta líklega gott og gilt. Það finnst Molaskrifara ekki.
Loks vekur Molaskrifari athygli á óvenjulegri grein í Morgunblaðinu bls.19 (10.06.2010). Greinin er eftir Guðrúnu Guðmundsdóttur, móður dauðvona drengs. Greinin er sannarlega þess virði, að hún sé lesin.
Skildu eftir svar