Boðað til mótmæla vegna ráðningu bæjarstjóra í Hafnarfirði, segir í fyrirsögn (visir.is 11.06.2010). Þetta á auðvitað vera ráðningar, ekki ráðningu.
Besti sigraði umræðuna, segir í fyrirsögn á mbl.is (14.06.2010)og er þar verið fjalla um hlut Besta flokksins í fjölmiðlaumræðu fyrir kosningar. Málfar íþróttafréttamennsku ræður nú ríkjum á ritstjórninni.
Ungur og ölvaður karlmaður braust inn í banka í Ellensburg í Washington um síðustu helgi þar sem að honum vantaði stað til að leggja sig.Það er ekki ofsögum sagt af ritsnilld þeirra á dv.is (11.06.2010).
Úr kvöldfréttum Ríkisútvarpsins (11.06.2010).. Eva Joly segist vera tilbúin í framboð, ef Græningjaflokkurinn allur fylki sér að baki hennar. Að áliti Molaskrifara hefði fréttamaður átt að segja : … að baki henni.
Þar fundust milljónir klámfengina ljósmynda, segir á mbl.is (11.06.2010). Þetta á að vera klámfenginna, ekki klámfengina.
Í Ríkisútvarpinu, Rás tvö (11.06.2010) var sagt: Við ætlum að hafa gaman. Það er orðið býsna algengt að heyra þetta orðalag, sem er hrátt úr ensku: We are going to have fun. Hreint ekki til fyrirmyndar. Þetta hefur verið nefnt hér áður.
Bjarni Sigtryggsson Molavin sendi eftirfarandi (13.06.2010):
„Fréttastofa RUV þýðir nú í kvöldfréttum enska orðið „hybrid“ sem „híbrid“. Mikil umfjöllun hefur samt verið hér innanlands um tvinn-bíla. Þeir eru flestir knúnir bæði olíu og rafmagni og eru til muna sparneytnari en venjulegri bílar. Þorkell Helgason keypti sér þessháttar bíl fyrir nokkrum árum þegar hann var orkumálastjóri.“
|
|
Það er þreytandi að heyra í fréttum tönnlast á lýsingum samkvæmt lögreglunni, samkvæmt Guðmundi eða samkvæmt sjónarvottum (RÚV 11.06.2010). Af hverju ekki: Að sögn lögreglunnar, að sögn Guðmundar og að sögn sjónarvotts?
Það var svolítið gaman að hlusta á dellupistil Jóns Vals Jenssonar í Útvarpi Sögu (11.06.2010) þar sem hann talaði um það sem hann kallaði dellufrumvvörp á Alþingi. Hann réðist harkalega að hugmyndum um sameiningu ráðuneyta (landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneytis) í hagræðingar- og sparnaðarskyni , meðal annars til að fækka ráðherrum og og fækka í yfirstjórn. Var á honum að heyra að landið mundi fara á hliðina ef úr yrði, að ekki sé talað um ef Jón Bjarnason léti af ráðherraembætti. Í pistlinum kristallaðist gamaldags afturhald,sem enn virðist lifa góðu lífi hjá sumum í VG
Skildu eftir svar