«

»

Einkaþotuflug úr iðrum tölvunnar…

Í iðrum tölvunnar minnar  fann ég langa  frásögn  sem ég hafði skrifað  í september  1985 er við fórum sex alþingismenn  með  einkaþotu , – skrúfuþotu   frá  Helga Jónssyni til Nuuk í Grænlandi.Tilefnið var stofnfundur vestnorræna þingmannaráðsins.

Flugvélin var  tekin á leigu  til að  spara  ferðatíma. Flogið var beint frá  Reykjavík til Nuuk. Flugtíminn var 3 klukkustundir og 40 mínútur.Hinn kosturinn var  að  fljúga  frá Keflavík til Kaupmannahafnar  gista þar yfir  nótt. Fljúga  síðan til Syðri Straumfjarðar á Grænlandi  og  taka  aðra  flugvél  þaðan  til Nuuk. Fara  síðan   sömu leið  til baka á  tveimur  dögum. Beina flugið  frá Reykjavík til Nuuk    kom sem sé  í stað tveggja daga  ferðalags og  gistingar.

Ég sé ekki betur en þetta sé  nákvæmlega það sama sem menn eru  nú að hneykslast á  að forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafi gert  að undanförnu.

Þingmennirnir sem  fóru í þetta  leiguflug  voru: Páll Pétursson, Friðjón Þórðarson,Steingrímur J. Sigfússon,Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,Stefán Benediktsson og Eiður Guðnason. Einnig var með í för  Aðalheiður Birgisdóttir  ritari á skrifstofu Alþingis.

Það gerði ekki  nokkur maður  athugasemdir  við þetta  ferðalag „með einkaþotu“ eins og það nú heitir.

En eins og  þar stendur:  Ekkert er nýtt undir sólinni.

Það  gerðir ekki nokkur maður

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Sæl Alla,

    Þetta var sannarlega ógleymanleg ferð. Það gerði  meðal annars   þessi „galdur“  sem  er í loftinu hvar sem  maður kemur á  Grænlandi.

    Kær kveða frá  Færeyjum.- Eiður

  2. Aðalheiður Birgisdóttir skrifar:

    Sæll Eiður.

    Þakka þér fyrir að rifja upp þetta flug.  Mér hefur verið hugsað til þessarar flugferðar- og reyndar fleiri þar sem „einkaþotur“ komu við sögu á þessum árum – upp á síðkastið. 

    Kveðja,

    alla

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>