Verð að játa að mér finnst það ekki mjög sannfærandi þegar félagar úr Ferðaklúbbnum 4×4 koma á BMW slyddujeppunum sínum til að loka aðgengi að olíubirgðastöðinni í Örfirisey. Þetta verður ennþá hjákátlegra ef satt er sem fjölmiðlar hafa greint frá, að félagar í 4×4 njóti sérstakra afsláttarkjara hjá olíufélögunum við kaup á eldsneyti. Það getur nú reyndar varla verið satt. Aðrir bílaeigendur eru þá að niðurgreiða eldsneytið til þeirra.
Þá held ég að trukkadólgarnir sem nú hrella saklausa vegfarendur séu með framkomu sinni löngu búnir að uppræta þann samúðarsnefil ,sem þeir kunna að hafa haft hjá einstaka manni. Langlundargeð lögreglunnar gagnvart þessum háskalegum lögbrotum er lítt skiljanlegt.
Skildu eftir svar