Fjaðrafokið vegna ferðar tveggja ráðherra og föruneytis til Búkarest er með ólíkindum.Einhver mundi segja að þetta væri til vitnis um málefnafátækt stjórnarandstöðunnar. Auðvitað eru þess mýmörg dæmi að ráðherrar og þingmenn hafi ferðast öðruvísi en með áætlunarflugi. Til dæmis með flugvél Landhelgisgæslu eða flugmálastjórnar meðan hún var til. Þetta er auðvitað gert þegar það er hagkvæmt.
Í maí 1983 fóru þingmenn til Færeyja í leiguflugvél vegna þess að það var hagkvæmt og hentugt. tveimur árum síðar þegar Vestnorræna ráðið var stofnað í Nuuk á Grænlandi fóru þingmenn þangað með skrúfuþotu frá Helga Jónssyni vegna þess að það var hentugt og hagkvæmt.
Nú 23 árum síðar fóru ráðherrar og föruneyti með þotu til Búkarest af þvb að það var hentugt og hagkvæmt. Þá ætla þingmenn stjórnarandstöðu af göflum að ganga af hneykslan.
Það er ekki hátt á þessu risið.
![]() |
Ferðamáti gagnrýndur |
Skildu eftir svar