Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í kvöld var boðað viðtal við aðaldómara í málinu gegn Birgi Páli Marteinssyni,sem dómur var keðinn upp í á miðnætti sl. föstudag í Þórshöfn í Færeyjum..
Ekki var rætt við dómarann, heldur var flutt viðtal við verjanda Birgis Páls, lögmanninn Óla Jakúp Kristoffersen úr færeyska sjónvarpinu í kvöld. Það kom margsinnis greinilega fram í viðtalinu að verið var að ræða við lögmann Birgis Páls en ekki dómarann. Hlustaði enginn, skildi enginn? Engin skýring , engin afsökun í lokin, bara bless og sjáumst seinna, eða eitthvað í þeim dúr. Skelfileg vinnubrögð.
Það er eitthvað alvarlegt að að í ritstjórn dægurmálaþáttar , þegar svona mistök verða.
Skildu eftir svar