«

»

Ítarefni um kjötinnflutning

Áhugasömum um frekari fróðleik skal bent á  leiðara Ólafs Þ. Stephensens  ritstjóra  24 Stunda í dag  „Gleymska Guðna“ . Húmoristarnir á  ritstjórn blaðsins  hafa svo sett   bráðfyndna grein   Bjarna Harðarsonar alþingismanns Framsóknar   um sama  efni  „Kratar  allra flokka og  hrátt kjöt“ á síðuna andspænis  leiðaranum. Í samhengi  er þetta tvennt  bráðskemmtilegur og fróðlegur lestur.

PS: Hér í  Færeyjum  er frjáls innflutningur  á kjöti:  Hér  eru lambahryggir og læri frá Goða  við hliðina á  lambalærum frá   Argentínu  og  Nýja Sjálandi. Hér fást líka  kjúklingar og  svínakjöt  frá Ítalíu og Dannmörku og er þá fátt eitt nefnt.

Engar fregnir  eru af manntjóni af völdum þessa innflutnings.

mbl.is Vilja ekki innflutning á fersku kjöti

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>