«

»

Molar um málfar og miðla 425

Lánið fellur á gjalddaga , sagði íþróttafréttamaður Stöðvar tvö (06.10.2010). Lán falla ekki á gjalddaga, heldur falla  lán í gjalddaga, ef   þau eru ekki greidd á réttum  tíma. Eindagi  er gjalddagi, síðasti dagur sem unnt er að greiða skuld án þess að á hana falli dráttarvextir eða annar kostnaður.

 Vinsamleg ábending  til Kastljóss: Umræður um stefnuræðu  forsætisráðherra eru ekki eldhúsdagsumræður. Eldhúsdagsumræður  fara fram í þinglok. Þetta er málvenja, sem engin ástæða er til að breyta.

 Ekki hvarflaði það  að umsjónarmanni Kastljóss Ríkissjónvarpsins (05.10.2010) að spyrja þá mótmælendur á Austurvelli,  sem vildu að  landið  fengi  svokallaða neyðarstjórn eða utanþingsstjórn hver  ætti að skipa slíka   stjórn, eða hvernig slík stjórn ætti að starfa í sátt við  þingið. Né heldur  datt  umsjónarmanni í hug að spyrja  þá sem kröfðust þess að hreinsað  væri út úr  þinghúsinu  hverjir ættu að taka  við.  Heldur dapurleg vinnubrögð. 

Umfjöllun um  atburðina á  Austurvelli   var  betri í fréttum Stöðvar tvö og í  Íslandi í dag en  raun bar vitni í  Ríkismiðlinum (05.10.2010). Þar kom vel fram  hverskonar skrílslæti þeir höfðu í frammi sem mest bar á þetta kvöld. Málefnalegast og skynsamlegast var þó framlag  Ölmu Jennyar Guðmundsdóttur í þætti Þórhalls Gunnarssonar Í návígi í  Ríkissjónvarpinu (05.10.2010). Fínn þáttur.

Orð Kolbrúnar Bergþórsdóttur um  skrílslæti á  Austurvelli í Morgunblaðinu ((07.10.2010) eru í tíma töluð.  Fjölmiðlar þora ekki að nefna  hlutina réttum nöfnum. Það er ámælisverður heigulsháttur. Hér hefur verið  leitast við að tala skýrt um þessi mál.  Við sáum skrílslæti í  sjónmvarpinu, en  við  sáum líka fullt  af fólki sem fór með friði.

Athyglisvert er er hvernig sömu lögmönnunum tekst aftur og aftur að plata fréttamenn og komast í sjónvarpsfréttir með „ekki-fréttir“, sbr. fréttina um regnhlífina (05.10.2010). Fréttastofur verða að gæta þess að láta óprúttna lögmenn ekki ljúga sig inn í fréttatímana.

Valdfíkinn maður,sem forseti Íslands er, þá þarf engum að koma á óvart frétt DV (06.10.2010) um að hann skuli  þegar  byrjaður að þreifa fyrir  sér um  skipun utanþingsstjórnar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>