«

»

Molar um málfar og miðla 426

 Í Morgunblaðinu segir frá því í tveimur nær samhljóða fréttum á  forsíðu og blaðsíðu  fjögur (07.10.2010) að dæmi séu um að fólk á efri árum  taki sparifé sitt út úr banka og  geymi  í bankahólfi. Molaskrifari nefnir, að þetta er fólkið sem  fjölmiðlar kalla  stundum  fjármagnseigendur í  afar  neikvæðu samhengi.  Í Útvarpi Sögu þennan sama  dag var sagt frá þessari frétt með þeim orðum að  þetta  væri algengt og  almennt  gerðu  eldri borgarar þetta.  Enn eitt  dæmið  um rangfærslur úr þessum ranni.

 Það er  dæmi um málflutninginn í Útvarpi Sögu, að annar aðalforsprakki stöðvarinnar leggur   íslenska oddvita,sem hann svo kallar, að jöfnu við Sjáseskúhjónin rúmensku og telur þeim  sjálfsagt sömu örlög samboðin. Stundum efast maður um að þetta  fólk sé með réttu ráði, að ekki sé meira sagt.   Þessi  fjölmiðill er meinsemd í skjóli málfrelsis. 

  Það rifjast upp, þegar horft er á  skelfilegar myndir  frá súrálsslysinu í Ungverjalandi, að á sínum tíma var rætt um að Rússar reistu  slíka  verksmiðju í grennd við Húsavík. Einhverjir  bentu á að þetta væri  sóðalegasti iðnaður  sem hægt  væri að hugsa  sér. Guði sé lof  fyrir að  þessi  áform  gufuðu upp.

   Þjóðin gat andað léttar , þegar  sagt var í hádegisfréttum  Ríkisútvarpsins (07.10.2010)  , að Hreyfingin,sem svo kallar sig, hefði  gefið ríkisstjórninni frest  fram á  mánudag til að koma með  tillögur  til úrlausnar vanda  skuldugra  fjölskyldna.

  Þulir verða að gæta sín að fara rétt  með,  þegar  tónlist er  kynnt.  Í  Ríkisútvarpinu var  að morgni dags (07.10.2010) leikið hið ómþýða lag Í fyrsta sinn ég sá þig, um sumarfagran dag, og  sagt að Magnús Ásgeirsson  hefði samið ljóðið.  Hið rétta er að ljóðið er eftir  Birger Sjöberg, en Magnús Ásgeirsson íslenskaði af alkunnri snilld (Magnús Ásgeirsson, Kvæðasafn, frumsamið og þýtt II. bindi,bls. 128, Helgafell  1960).

  Íslenska karlalandsliðið hefur  aldrei átt lið í í lokakeppni í stórmóti í knattspyrnu,   sagði íþróttafréttamaður  Ríkisútvarpsins (07.10.2010). Hann hefði betur  sagt: Íslenskt karlalandsliðið hefur aldrei  tekið þátt í lokakeppni í stórmóti í knattspyrnu.

  Stal sígarettupakka og kveikjara, segir í fyrirsögn á  mbl.is (07.102010). Það er eins og Molaskrifara minni, að einhverjir hafi líka stolið bönkum, og gangi enn lausir og glotti til samfélagsins.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>