«

»

Molar um málfar og miðla 427

Í áttafréttum Ríkisútvarpsins (09.10.2010) sagði fréttamaður: Þeirra á meðal Barack Obama,sem vann friðarverðlaunin í fyrra.  Ekki kann Molaskrifari að meta þetta orðalag. Barack Obama hlaut friðarverðlaunin í fyrra. Þeim er úthlutað án þess að um þau sé keppt.  Sami fréttamaður  sagði, að ríkisstjórn  Frakklands vonaðist til að eftirlaunamálið í heild sinni hafi verið  ráðið til  lykta…  Hér hefði verið betra   að segja að  ríkisstjórn Frakklands  vonaðist til að  eftirlaunamálin í heild sinni hafi verið leidd  til lykta…  Að leiða eitthvað til lykta er að ljúka einhverju. 

 Sagnirnar að opna og loka vefjast  fyrir  fréttamönnum. Í fimmfréttum Ríkisútvarps  (07.10.2010) sagði fréttamaður: Nærliggjandi  götur  voru lokaðar þegar í stað. Hér átti að segja: Nærliggjandi götum var  þegar í stað  lokað (vegna sprengjuhótunar).

 Í fréttum Ríkisútvapsins  (08.10.2010) var sagt: Kínverjar eiga í hótunum við Norðmenn.  Það er   ruglugangur að segja  að einhver eigi í hótunum við einhvern. Hér  hefði átt að segja: Kínverjar hafa í hótunum við Norðmenn.

   Molalesandi sendi eftirfarandi (07.10.2010): „Áðan heyrði ég auglýsingu í RÚV (reyndar sama hver miðillinn er):
Hvað geta ljóðskáld sagt hvort öðru?
Datt í hug að ljóðlist á Íslandi væri nánast útdauð og nú væru aðeins tvö skáld eftir.“ Já , er það ekki makalaust að hjá  þessum stærsta og voldugasta  fjölmiðli landsins skuli fólki ekki  vera  ljós munurinn á  hvort öðru og  hvert öðru ? Nema þá  að umburðarlyndið alræmda  nái svona langt. Því verður  vart trúað. 

 Hluti nauðungargjalds,sem við greiðum Ríkisútvarpinu Ríkisútvarpinu er notaður til að kaupa slúður frá íslenskri konu í Bandaríkjunum. Þessu er svo hellt  yfir  hlustendur Rásar tvö á  föstudagsmorgnum. Svona eins og hellt var úr koppi í gamla daga.  Þetta hefur svo sem verið nefnt hér áður. Á föstudaginn var (08.10.2010) var okkur sagt frá hermanni sem var að leggjast til hvílu. það var verið að jarða hann. Líka var talað um brotið hjarta. Er þá fátt eitt nefnt af því sem sagt var. Ríkisútvarpið kann ekki að skammast sín. Svo  mega umsjónarmenn muna að okkur hlustendum koma persónulegar skoðanir þeirra ekkert við. Þeir eiga að halda þeim fyrir sig.

  Fyrirkomulag rjúpnaveiða verður með sama  fyrirkomulagi og í fyrra var  sagt í fimmfréttum Útvarps Sögu (07.10.2010). Það var og.  Fyrirkomulagið verður með sama fyrirkomulagi! Fyrirkomulag rjúpnaveiða verður óbreytt frá fyrra ári,sagði fréttaþulur Ríkisútvarpsins  ágætlega í  sexfréttum.

Húsfyllir á Húsavík. Góð fyrirsögn á mbl.is (07.10.2010)

 Hefur lengi beðið þess að fá úthlutaða lóð í Reykjavík. Svona var tekið til orða í fréttum Stöðvar tvö (07.10.2010). Betra hefði verið að segja: Hefur lengi beðið þess að fá úthlutað lóð í Reykjavík.

 Tónlistin er fín hjá  KK á Rás eitt á morgnana. Kynningarnar mættu vera betri, – á stundum.  Ekki segja:  Við ljóð Hannes Hafstein. Heldur:  Við ljóð Hannesar Hafstein.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>