«

»

Molar um málfar og miðla 428

Í fjögurfréttum  Ríkisútvarpsins (08.10.2010) var talað um að byggja heimili.  Á íslensku  tölum við um að  byggja  hús. Við byggjum ekki heimili.  Fólk stofnar  hinsvegar heimili, þegar það fer að búa.  Við þetta bætist eftirfarandi  frá Molavin:

„Heimili Herberts á uppboð“ segir á forsíðu Eyjarinnar og er þar
vitnað í DV frétt, sem minnist þó ekkert á að selja eigi heimili
umrædds söngvara, heldur hús hans. Þessi hugtakaruglingur, um uppboð á
heimilum, hefur verið fyrirferðarmikill í fjölmiðlaumræðu liðinnar
viku. Vitaskuld er heimili fólks oftast í húsi, en þótt húsið verði
selt hæstbjóðanda, þá flytur heimili þess, sem húsið missti,
væntanlega eitthvað annað. „Hús er ekki heimili“ segir í gömlum slagar
eftir Burt Bacharach (A House is not a Home). Gott er þegar fréttafólk
fer rétt með hugtök.   -Molavin.
 Í Ríkisútvarpinu eru menn samkvæmir sjálfum sér því í sexfréttum (08.10.2010) var talað um uppbyggingu nýrra heimila.  Það slær þeim enginn við.  

   Það eru alvarleg tíðindi, að eggjaskríllinn á Austurvelli skuli vera að eyðileggja  Alþingishúsið.  Þrífa þarf húsið með  háþrýstidælum eftir hverja eggjakastshrinu. Grágrýtið  í húsinu er hvorki hörð né endingargóð steintegund. Þessvegna  verða  varanlegar skemmdir  á húsinu í hvert  skipti sem háþrýstidælunum er beitt. En eggjaskrílnum stendur á sama.

 Fréttatíminn nýi er  snoturt blað á ýmsan veg, enda standa góðir fagmenn að blaðinu. Hann er þó  ekkert byltingarblað, en fer ágætlega  af stað.

 Stefið,sem jafnan  er leikið á  undan  dánarfregnum og  jarðarförum í Ríkisútvarpinu er smekklegt og við hæfi. Stefið, sem leikið er á undan hádegisútvarpinu  svokallaða klukkan  tólf  er hinsvegar   jarðarfararlegt. Fréttastefið hefur heldur ekki batnað með tímanum. Það var slæmt og er slæmt. Venst ek

Pennum á pressan.is (08.10.2010) er ekki öllum töm rökhugsun, sbr.  eftirfarandi: …hún skrifaði André harðorðan tölvupóst þar sem honum var tilkynnt að hún hefði bannað starfsfólki bankans að eiga ekki frekari samskipti við hann.   Það var og. Bannað að eiga ekki frekari samskipti við.  Þetta er skrifað á kostnað og fyrir reikning VÍS, Vátryggingafélags Íslands, sem á þátt í að halda þessu fyrirtæki á floti, (pressan.is )   Öllum sé það til athugunar,sem tryggja hjá VÍS.  Menn verða að hugsa til þess hvert iðgjaldagreiðslurnar fara. Sumum finnst sjálfsagt gott og gilt, að hluti þeirra fari lóðbeint til gamalla Framsóknarmanna. Molaskrifari er ekki sannfærður um ágæti þess.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>