Í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins (08.10.2010) var sagt: Það er enginn bilbugur í ykkur. Málvenja er að segja, að ekki sé bilbugur á einhverjum. Og er sannarlega engin ástæða til að breyta því. Bilbugur er „sveigja (á fylkingu), undanhald; undanlátssemi, hik; ótti (í bardaga)“ (Mergur málsins, dr. Jón G. Friðjónsson bls. 63) Í sama fréttatíma talaði fréttamaður um kröfur á hendur erlendu svikamyllufyrirtæki og sagði , þær eru taldar nema hundruðum milljónum dollara. Hér hallast Molaskrifari að því að segja hefði átt: Hundruðum milljóna dollara.
Í fréttum er ýmist talað um innistæður eða innstæður, þegar fjallað er um fé á bankareikningum. Enginn munur er er þarna á. Hvort tveggja er rétt.
Oft eru undarlegar fullyrðingar í sjónvarpsauglýsingum. Um tilteknar snyrtivörur er sagt að augnlæknar mæli með þeim. Hvaða augnlæknar? Allir augnlæknar. Um íþróttaskó er sagt að þeir móti á manni rassinn meira en aðrir skór. Líklega er ekki átt við að það komi dýpra far í rasskinn eftir spark með slíkum skóm. Um krem,sem borðið er á húðina er sagt, að það styrki húðina innanfrá. Makalaust er líka að lesa í blaðaauglýsingu um kennara með áralanga reynslu af kennslu í naglafræði. Ja, hérna. Mörg eru fræðin.
Ríkissjónvarpið hefur tilkynnt hefur tilkynnt okkur að hver þáttur af Landanum, innlendum fréttaþætti, verði sýndir fjórum sinnum í hverri viku. Það er svo sem góðra gjalda vert. En gott væri ef hægt væri að segja okkur, þegar sýnt er áhugavert íslenskt efni , hvenær það verði endursýnt. Það á til dæmis við um mynd Hans Kristjáns Árnasonar,sem sýnd var í gærkveldi(10.10.2010) um ævintýralegan feril Skógstrendingsins Sveins Kristjáns Bjarnarsonar. En líklega er það til of mikils mælst. Níðþungt kerfið veldur því ekki.
Skildu eftir svar