Stjórnendur Ríkissjónvarpsins vita að margir fylgjast með knattspyrnuleikjum í beinni útsendingu. Ekki síst börn og ungmenni. Það er ámælisvert að Ríkissjónvarpið skuli punda ólöglegum áfengisauglýsingum inn á heimili landsins rétt áður en leikurinn hefst, tvisvar sinnum í hálfleik og svo í leikslok. Þetta segir heldur dapurlega sögu um þessa stofnun í almannaeigu.
Svo er spurt: Þarf fimm eða sex svokallaða „fótboltafræðinga“ til að gera einum knattspyrnuleik skil ? Molaskrifara finnst það nokkuð vel í lagt. Ekkert er að því að fá l lýsingu á leiknum og stutta samanmtektí lokin en ekki endalaus teygjuviðtöl og tuð. Nei takk. Það er líka vel í lagt að taka tvær og hálfa klukkustund úr kvölddagsskrá Ríkissjónvarpsins undir einn knattspyrnuleik.
Af mbl.is (11.10.2010): Karlmaður sem missti meðvitund í tanki við Drafnarslipp við Strandgötu í Hafnarfirði í hádeginu er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Viðlíka dæmi hafa oft verið birt hér. Sá sem skrifaði man ekki hvaðan hann fór, þegar kemur að því að setja punkt. Hér ætti setningin auðvitað að hefjast á þágufallsmynd orðsins karlmaður, – Karlmanni er haldið sofandi.
Velunnari Mola gerði athugasemd við frétt á mbl.is (09.10.2010) Af mbl.is í dag:
Úr mbl.is (10.10.2010) Indversk kona, sem var strandarglópurá flugvellinum í Musca. Á íslensku verða menn ekki strandarglópar. Seinheppnir, eða klukkulausir , verða strandaglópar.
Enn skal hér minnst á gjalddaga. Íþróttafréttamaður Stöðvar tvö sagði (12.09.2010) Lánið fellur á gjalddaga. Málvenja er að segja að lán falli í gjalddaga. Eða, lánið er á gjalddaga á föstudaginn.
Ekki var þáttur númer tvö af Hringekju Ríkissjónvarpsins , skárri en sá fyrsti. Mikil gjafalauglýsung til Hamborgarafabrikkunar,sem svo kallar sig . Hversvegna ? Sjáum til með þriðja þátt. Allt er þegar þrennt er.
Skildu eftir svar