Úr mbl.is (14.10.2010): ….að það þyrfti fyrst og fremst að huga að fólki á aldrinum frá 25 til 40 ára, sem keyptu sér húsnæði á árunum fyrir hrun . Fólk keyptu sér ekki húsnæði. Fólk keypti sér húsnæði. Ef sagt hefði verið – þeim sem keyptu sér húsnæði, væri setningin rétt.
Prýiðlegur er pistill í Lesbók Moggans (16,10.2010) eftir Baldur Sigurðsson,; Smámál eða stórmál. Kærar þakkir fyrir það.
Ég ætla að drepa á því helsta, þagði þingmaður í ræðustóli Alþingis. Molaskrifara þykir það réttara mál og betra áð tala um drepa á það helsta ( í málinu sem verið er að ræða) Einnig hefði þingmaðurinn getað sagt, — Ég ætla að tæpa á því helsta…í merkingunni að minnast aðeins á, eða fjalla lauslega um.
Oft hafa verið nefndar hér forsetningar með íslenskum staðaheitum. Í hádegisfréttum Ríkisútvafrpsins (16.10.2010) talaði fréttamaður um eitthvað gerðist í Hólmavík. Molaskrifari er vanur því talað sé atburð sem gerist á Hólmavík. Kannski er hvort tveggja málvenja þar slóðir. En það hefur svo sem áður vefið nefnt á þessum vettvangi að til var á fréttastofu Ríkisútvarpsins listi með forsetningum og íslenskum staðaheitum. Kannski hefur honum verið kastað fyrir róða á þessum tímum hins mikla umburðarlyndis varðandi tunguna okkar. Kannski varð listinn eftir á Skúlagötu 4. Kannski liggur hann einn og ótruflaður í hillu Éfstaleiti. Kannski vilja menn ekki opinbera fáfræði sína með því að styðjast við hann.
Í helgarútgáfu Fréttablaðsins sagði frá finnskum sjónvarpsfréttamanni, sem var rekinn úr starfi fyrir að drekka bjór í beinni útsendingu. Síðan gerðist það í fréttum Stöðvar tvö á Íslandi að fréttamaður þambaði bjór í fréttatímanum. Fréttablaðið segir síðan á þessa leið: Sagt er að þessi gjörningur fréttamannsins virðist „ekki hafa farið fyrir brjóstið á mörgum þó að sjálfskipaði málfarsráðunauturinn Eiður Guðnason, sem bloggar á Eyjan.is hafi sagt bjórdrykkju fréttamannsins orka tvímælis“. Það gerði ég vissulega, en líklega hefði ég mátt taka dýpra í árinni.
Birting bjórþambs var alvarlegur dómgreindarbrestur hjá fréttamanninum og yfirmönnum hans. Það er bannað að auglýsa áfengi. Fréttamaðurinn smjattaði á bjórnum og lýsti ágæti hans. Hvað er það annað en dómgreindarleysi. Stöð tvö braut lög.
Hitt er svo auðvitað frétt að notað skuli alíslenskt bygg í þessa framleiðslu og ekkert óeðlilegt við að segja frá því. En það ´tti að sleppa drykkjunni.
Molaskrifari fær svo í lokin skot frá fréttamanninum ,um að það sé nú „frekar erfitt að gera honum (Eiði Guðnasyni) til geðs“. Það er mjög auðvelt að gera mér til geðs, en ambögur sem á okkur dynja í fjölmiðum eru mér ekki að skapi , – hvað þá þegar lögbrot eru framin í beinni útsendingu eins og þarna var.
Skildu eftir svar