«

»

Ekkert óeðlilegt

Okkur Íslendingum finnst ekkert óeðlilegt við að borga  fyrir aðgang  að vinsælum ferðamannastöðum  erlendis. Það hef ég gert í Kanada og Kína og í fjölmörgum öðrum löndum. Þetta er bara sjálfsagt og eðlilegt. En hverra hluta vegna fer allt á annan endann, ef talað er um að gera þetta hér á landi.

Ferðaskrifstofur  og skipuleggjendur hópferða selja  viðskiptavinum sínum í rauninni aðgang að  Kerinu, Gullfossi og  Geysi og mörgum  fleiri stöðum. Auðvitað á  afgjald að koma  fyrir, –  afgjald  sem  síðan nýtist  til umbóta á  stöðunum og  til  lagfæra  skemmdir  eftir ágang  tugþúsunda  ferðamanna.

mbl.is Aðgangur að Kerinu í Grímsnesi takmarkaður

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>