«

»

Íslendingar á síðum TIME

Tveir Íslendingar hafa á síðustu vikum komist á síður vikuritsins TIME. Ólafur Ragnar Grímsson,forseti, vegna endurnýjanlegrar orku á Íslandi. Hann lét þess getið,að Al Gore, fyrrum varaforseti  Bandaríkjanna , hefði vakið  áhuga hans á umhverfismálum. Einhver  spyr  sjálfsagt  hvort  hann hafi  aldrei hlustað á Hjörleif í gamla  Alþýðubandalaginu !Hinn er Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar,sem TIME  telur einn af eitt hundrað áhrifamestu einstaklingum í veröldinni. Það er ekki lítið. Í rauninni er merkilegt að íslenskir  fjölmiðlar skuli  ekki hafa veitt þessu meiri athygli.Þessi umfjöllun TIME er merkileg og sýnir Ísland í samhengi   tímans og  heimsvæðingar. Hér áður fyrr   komst Ísland á  síður  TIME  svona annaðhvert ár,  og þá oftast vegna eldgosa,  þorskastríða, Bobby Fischers eða Loftleiða.Þetta man ég  því ég var fréttaritari TIME  í hjáverkum frá  1965  til  1978. Tók við því embætti af Þórði Einarssyni, frænda mínum, síðar  sendiherra. Vissum  víst hvorugur af  frændseminni þá.  Þegar ég  tók sæti á þingi  1978 tók samstarfsmaður minn í sjónvarpinu, Bogi Ágústsson síðar fréttastjóri við.Nú er það  sjálfsagt svo, að  stórveldi á  borð við TIME  þurfa ekki hjáverkafréttaritara  á Íslandi  eða “stringer” eins og það heitir á  ensku.  Því veldur  breytt heimsmynd og breytt   tækni, og  samt er  Ísland oftar á síðum þessa  víðlesna rits en nokkru sinni fyrr. 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>