«

»

Molar um málfar og miðla 946

Í  fréttatíma Stöðvar tvö (05.07.2012) var rætt við roskin bresk systkin sem höfðu  siglt út fyrir Vestfirði þar sem  faðir þeirra fórst með bresku herskipi í  heimsstyrjöldinni síðari.  Talað var um rússneska skipalest ,sem er  rangt. Þetta var skipalest bandamanna  á leið til Rússlands með hergögn og birgðir af ýmsu tagi. Sagt var  að  skip föður þeirra hefði verið fremst í fararbroddi, í fararbroddi hefði nægt. Í sömu frétt var sagt að skipið hefði siglt inn í tundurskeytasvæði, – rétt hefði verið að tala um tundurduflasvæði. Þetta var alveg einstaklega illa unnin frétt. Frá þessu hörmulega sjóslysi þar sem fjölmörg skip fórust er ítarlega sagt í nýrri og ágætri bók Magnúsar Þórs Hafsteinssonar , en hún heitir  Dauðinn í Dumbshafi.  Þá var í sama fréttatíma ítrekað talað um meðlimi þjóðþinga, – þingmenn. Fleira mætti tína til úr þessum eina fréttatíma. Þið eigið að geta gert betur en þetta fréttastofa Stöðvar tvö!

 

Í fréttum Ríkissjónvarps (005.07.2012) var talað um að tala fyrir tómum eyrum ! Átt var við að tala fyrir daufum eyrum. Í inngangi fréttarinnar fór Ingólfur Bjarni Sigfússon sem var þulur í fréttatímanum hinsvegar rétt með þetta og  sagði að talað væri fyrir daufum eyrum. Hlustar enginn á svona fréttainnslög áður en þeim er hellt yfir þjóðina ?

 

Það er líklega tímanna tákn og staðfesting á málstefnu og menningarstefnu Ríkissjónvarpsins að sýna okkur íslenska matreiðsluþætti þar sem eingöngu er töluð (amerísk) enska eins og gert var í gærkveldi (05.07.2012). Ríkisútvarpið gerir allt sem í þess valdi stendur til að styrkju stöðu tungunnar eins og því bera að gera lögum samkvæmt. – Matreiðslan var hinsvegar flott og fagmannleg svo sem vænta mátti. Samanborið við matreiðslumanninn sem  stöðugt er á ÍNN þá er einkunnagjöfin annarsvegar einn og hinsvegar níu!

 

Í formála nýrrar og prýðilegrar matreiðslubókar sem Hagkaup hefur gefið út   (Grillréttir Hagkaups) segir í formála um höfundinn: Hrefna lærði kokkinn í Apótekinu sem var ….  Ekki kann Molaskrifari við þetta orðalag. Ef einhver fer í prentnám lærði hann þá prentarann? Er rétt að segja um þann sem lært hefur múrverk, að hann hafi lært múrarann?

 

Það er alltaf  slæmt þegar farið er rangt með mannanöfn í fjölmiðlum. Verra er  þegar það er ekki leiðrétt. Í skjátexta í seinni fréttum Ríkissjónvarps (05.07.2012) var rangt farið með föðurnafn  hins þjóðkunna vísindamanns dr. Sigmundar Guðbjarnasonar, fyrrum rektors Háskóla Íslands, nú rannsóknastjóra Saga Medica.  Dr. Sigmundur  hefur unnið að merkilegum rannsóknum á íslenskum jurtum og jurtalyfjum sem vakið hafa heimsathygli að verðleikum. Ríkissjónvarpið ætti að geta haft þetta rétt, eða að minnsta kosti að leiðrétta þegar rangt er með farið. Þetta ber vott um þekkingarskort þess sem skrifaði og svolítinn subbuskap í verkstjórn.

 

Molaskrifari gerir ekki mikið af því að hrósa Morgunblaðinu. En áskrifendaþjónusta Morgunblaðsins  á hrós skilið fyrir að senda blaðið nánast hvert á land sem er að óskum áskrifanda, – þótt ekki sé nema í einn eða  tvo daga í senn. Það sama á við um áskrifendaþjónustu DV,sem raunar einfaldar þetta því þar er hægt að fá áskrifendakort sem nægir að sýna til að fá blaðið afhent á sölustöðum.

 Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG

 

4 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Eldamennskan var fín, kannski svolítið flókin fyrir heimiliskokka, – en allt hitt var afar undarlegt, – að ekki s´´e nú meira sagt.

  2. Kristján skrifar:

    Þetta er nú með því skrýtnara, íslenski kokkurinn að tala óskýra amerísku við Íslendinga. Hallærislegt. Þessi þáttur á ekki heima á RÚV.

  3. Eiður skrifar:

    Það má vissulega til sanns vegar færa. Hinsvegar er notkunin á reiki, – eintala , fleirtala. En einhvern´tíma heyrði ég að þetta hefði á sínum tíma verið ákvörðun stofnandans að Haugkaup skyldi vera eintöluorð. Sel það þó ekki dýrar en ég keypti.

  4. Jakob S. Jónsson skrifar:

    Sæll, Eiður!
    Ætti það ekki að heita „Grillréttir Hagkaupa“?
    Kv,
    Jakob

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>