«

»

Molar um málfar og miðla 1531

Málglöggur hlustandi vakti athygli Molaskrifara á því að í fréttum Ríkisútvarps (28.07.2014) hefði verið tekið svo til orða að það bætti úr sök. Molaskrifari hnaut reyndar einnig um þetta orðalag. Hér hefur fréttaskrifari, að mati Molaskrifara, ruglað saman tveimur orðatiltækjum, sem því miður gerist nokkuð oft. Talað er um að eitthvað komi ekki að sök, eitthvað hafi engin áhrif, breyti ekki neinu. Hinsvegar sagt að eitthvað bæti ekki úr skák, færi mál ekki til betri vegar, sé ekki til bóta.

 

KÞ skrifaði (29.07.2014) og benti á þessa frétt á Eyjunni/Pressunni: http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/07/28/metan-undir-koldum-hofum-getur-ordid-stort-umhverfisvandamal/

,,Hann spyr hvað getur maður sagt um svona fréttamennsku?” Lesendur geta dæmt um það, – en eru þetta nokkuð óvenjuleg vinnubrögð á þessum fjölmiðli? Molaskrifari þakkar KÞ ábendinguna.

 

Úr frétt á mbl.is (29.07.2014): ,,Farþeg­arn­ir í rút­unni voru á leið frá Sviss til Nor­d­kapp, sem er einn af nyrstu bæj­um Nor­egs. Átti sá bær að vera einn af hápunkt­um ferðar­inn­ar. Rút­an var búin að vera á ferðalagi í tíu daga.” Nordkapp er ekki bær. Nordkapp er sveitarfélag á Finnmörku þar sem eru nokkrir smábæir. Stjórnsýslumiðstöðin er í Honningsvåg.

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/07/29/helt_i_hondina_a_deyjandi_manni/

 

Af fésbók (28.07.2014): ,,Fyrsta Louise L. Hay vinnustofan á Íslandi … sem mun bera heitið „Lifum heil … verður haldin 12. ágúst nk. kl. 17:29 – 20:29 á höfuðborgarsvæðinu… Já, ég hef nú öðlast kennararéttindi sem Heal Your Life® kennari … og er reiðubúin að fara hvert á land sem er með vinnustofurnar.”

Halda vinnustofu? Fara með vinnustofu hvert á land sem er? Skyldu þær vera fyrirferðarmiklar? Sennilega er hér verið að reyna að íslenska enska orðið workshop, námskeið eða vinnufund. Orðið vinnustofa hefur til þessa haft allt aðra merkingu í íslensku. Hvað þýðir annars ,,Lifum heil”?

 

Verslunin opnar í Laugardalshöll á morgun, sagði fréttaþulur Stöðvar tvö (28.07.2014). Þess var ekki getið fremur en endranær hvað verslunin mundi opna.

 

Lesa mátti á visir.is (28.07.2014) að flugfélagið Ryanair væri með jákvæða afkomuviðvörun. Átt var við tilkynningu um að rekstur félagsins gengi betur en vænst hefði verið. Þarf að vara við svo góðum tíðindum? Nýlega sá Molaskrifari lungann úr athyglisverðri heimildamynd á einni af norrænu stöðvunum sem hér er hægt að horfa á. Þar var fjallað um Ryanair og Easyjet, rekstur þeirra og hugmyndafræðina sem reksturinn er byggður á . Afar fróðlegt.

 

Enn er hér spurt: Hversvegna þarf Ríkissjónvarpið alltaf að pukrast með það þegar verið er að endursýna efni? Það er eiginlega bæði fremur ómerkilegt og óheiðarlegt.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Jón skrifar:

    Í þessu samhengi er líklega átt við Nordkap sem oft er (ranglega) sagður nyrsti oddi Evrópu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>