Þessi endemis ræða míns ágæta kunningja, er bara bull og meira bull. Hvernig í ósköpunum á þjóðin að bera virðingu fyrir löggjafarsamkomunni, þegar þar er talað með þessum hætti ?
Sá sem svona talar veit ekkert um gömlu Sovétríkin og enn minna um Evrópusambandið.
![]() |
Eigum ekkert erindi í hið nýja Sovét |
6 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Gústaf Níelsson skrifar:
15/07/2009 at 23:08 (UTC 0)
Óþarft er að líkja hvatvísi Árna við fákunnáttu, en til eru þeir fræðimenn sem vilja líkja þróun ESB við stjórnkerfi Sovétríkjanna sálugu, en þau voru, sem kunnugt er sambandsríki. Sannleikskorn kann að leynast í orðum Árna.
Eygló skrifar:
14/07/2009 at 00:53 (UTC 0)
Heill þér Kama Sutra. Hann á ekki skilinn stafkrók, hvorki hér né annars staðar.
Kama Sutra skrifar:
14/07/2009 at 00:46 (UTC 0)
Eigum við nokkuð að vera að æsa okkur yfir því hvað ómerkingurinn Árni er að bulla? Hlustar einhver á hann?
Það er mér gjörsamlega ómögulegt að skilja hvernig hann kemst inn á þing – aftur og aftur og aftur. Stundum heldur maður í alvöru að kjósendur séu fífl – nema ég sjálf auðvitað…
Magnús Geir Guðmundsson skrifar:
13/07/2009 at 23:56 (UTC 0)
Já, árni er alltaf í stuði!
Eygló skrifar:
13/07/2009 at 23:43 (UTC 0)
Þegar ég las hver ræðumaðurinn hafði verið, sjatnaði í mér. Hefði ekki búist við neinu „gáfulegu“ frá þessum þingmanni sem fyrir skömmu söng í ræðustól. Þá keyrði um þverbak.
Hallur Magnússon skrifar:
13/07/2009 at 23:27 (UTC 0)
„Power may be shared, but sovereignty may not“.
Þetta er ein af klárum niðurstöðum stjórnarskrárréttar Þýzkalands um álitamál Lissabon sáttmálans. Biðst afsökunar á þvi að hafa þetta ekki á þýzku – las þet ta á ensku.
Þetta dugir mér í debattinum um framsal fullveldisins. Framsalið á því fullveldi ssem framselt verður hefur þegar farið fram í EEs samningnum.
Eiður!
Nú erum við sammála!