Þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma nú í ræðustól á Alþingi í hverri viku og heimta afsökunarbeiðnir frá þingmönnum úr stjórnarflokkunum vegna einhvers sem skiptir afa rlitlu máli í því ógnarásatandi sem nú ríkir.
Hvernig væri nú að Sjálfstæðisflokkurinn bæði íslensku þjóðina afsökunar á því hvernig staðið var að einkavæðingu ríkisbankanna á sínum tíma. Framsóknarflokkurinn mætti gjarnan standa að þeirri afsökunarbeiðni líka.
Spillingin í kringum einkavæðingu bankanna á ríkan þátt í því hvernig komið er í samfélaginu og hve margir eiga nú um sárt að binda.
Ég minnist þess ekki að þessir tveir flokkar sem einkavæddu bankana með hneykslanlegum hætti hafi beðið nokkurn mann afsökunar á siðspilltum vinnubrögðum..
![]() |
Krefst þess að Árni Þór biðjist afsökunar |
6 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Þórunn S. Ólafsdottir skrifar:
20/07/2009 at 16:37 (UTC 0)
Góðan dag. Innilega sammála öllu sem þú skrifar um íslenskt mál. Ekki líður sá dagur, að ekki heyrist eða sjáist „ruglu-bullu-sull“ hjá annars þaulreyndum fréttamönnum, liggur mér (gamalli kerlingunni) við að segja. Allir hafa verið að „fara erlendis“ – eins vitlaust og það nú hljómar þegar þeir sömu kynnu ef til vill einhvern tíma í framtíðinni að “ koma hérlendis“ Þar fór ég alveg með það. “ Reimaðu skónna – skokkaðu yfir brúnna og kysstu frúnna „- og ekki má gleyma “ Öggsar við ánna“ sennilega bara stutt í „sgjóttum upp fánna…og hvers vegna í ósköpunum þarf fólk að segja bæ-bæ ??
Sverrir Einarsson skrifar:
15/07/2009 at 16:43 (UTC 0)
Gestur: Geir bað flokkinn sinn afsökunar, ekki þjóðina. Hafi Valgerður Lómatjarnardrottning beðið Framsóknarflokkinn afsökunar (ég hef hvergi séð né heyrt þetta) þá sérðu hverjir koma fyrst í forgangsröðinni þjóðin er sennilega einhverstaðar langt fyrir neðan Flokkana og flokksgæðingana. Þannig að mitt álit á þessum stjórnmálamönnum er það sama hvorum flokknum sem það fylgir = siðlaust pakk og . Þessir flokkar skulda þjóðinni enn afsökunarbeiðni
Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar:
15/07/2009 at 11:08 (UTC 0)
Stendur ekki til að einkavæða bannkana aftur hverjir verða þá á vakt kannski þeir sem nú eru við völd. Miða við hvernig þau vinna í dag eru þau engu betri enn þau sem deilt hafa verið á. Hvernig er staðann í baunnkunum, það er talað um nýju og gömlu bannkana ég sé engan mun. Það eina sem er verið að gera er að bjarga þeim sem stálu úr þeim.
Gestur Guðjónsson skrifar:
15/07/2009 at 09:46 (UTC 0)
Valgerður Sverrisdóttir baðst afsökunar á þeim hluta sem gerðist á vakt Framsóknarflokksins, í ræðu sinni á Flokksþinginu í janúar.
Eygló skrifar:
15/07/2009 at 03:02 (UTC 0)
Ansi margir stjórnmálamenn (margir, ekki allir) eru með einhvers konar einstefnuloka í heilabúinu; bæði hvað varðar minnið og aðferðir.
Einar Þór, er nú ekki allt í lagi að leyfa þeim að tóra, bara fá sér önnur viðfangsefni kannski?!
Einar Þór Strand skrifar:
14/07/2009 at 23:02 (UTC 0)
Ég vona bara að íslenskir stjórnmálamenn í landspólitík fari nú að skilja að nærveru þeirra er ekki lengur óskað hér á þessari jörð.