Snilldartexti úr Netmogga (11.08.2009): Við höfum fengið þær upplýsingar að um faraldur sé að ræða. Ég get ekki útilokað að um 50% hermannanna smitist á endanum,“ sagði hann jafnframt.
Hermennirnir hafa það verkefni að hafa eftirlit með landamærum ríkjanna, sem teygir sig yfir 196 km langt svæði.
Norska ríkisútvarpið segir að hersveitin telji um 600 hermenn.
1.Hermenn smitast á endanum
2. Landamærin teygir sig.
3. Hersveitin telur 600 manns.
Batnandi fólki er best að lifa. Loksins var sagt á Rás eitt (12.08.2009) : Í dag er tvö hundruð tuttugasti og fjórði dagur ársins.
7 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Ár & síð skrifar:
15/08/2009 at 11:31 (UTC 1)
Mun skárra væri: ,,Ég get ekki útilokað að alls muni um helmingur hermanna smitast.
Það hlýtur að vera slæmt fyrir menn sem sitja mikið að smitast á endanum…
Matthías
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
12/08/2009 at 21:27 (UTC 1)
Að ljá máls á einhverju , er að vera reiðubúinn að fallast á að gera eitthvað., eða taka jákvætt í eitthvað, tala vel í eins og stundum er sagt. Eins og þingmaðurinn notar þetta orðtak er greinilegt að hann hefur ekki minnstu hugmynd um hvað það þýðir. Formaður nefndarinnar léði ekki máls á að taka tillöguna á dagskrá.
Kristinn R. Ólafsson í Madríd skrifar:
12/08/2009 at 21:23 (UTC 1)
Auk þess er þátíðin af að ljá ekki LJÁÐI… heldur LÉÐI
TJ skrifar:
12/08/2009 at 17:01 (UTC 1)
Aðeins meira um þetta „þóknunargjald“, ætli þetta sé gjald af þóknun? Hver ætli greiði hverjum hvað?
Líklega væri eðlilegra að tala annað hvort um þóknun sem tekin er fyrir tiltekið viðvik eða gjald sem lagt er á. Í þessu tilfelli var gjaldið hlutfall af upphæð þeirri sem sýslað var með, einhver gæti þá kannski viljað kalla þetta umsýslugjald, nú eða -þóknun.
TJ skrifar:
12/08/2009 at 16:30 (UTC 1)
Þá stendur á mbl.is að „þóknunargjaldið var tekið í gagnið“ – það hefur þá líklega ekki verið lagt á.
TJ skrifar:
12/08/2009 at 16:26 (UTC 1)
Svo var það húsið sem „varð fyrir málningu“… 🙂
Rostropow skrifar:
12/08/2009 at 14:47 (UTC 1)
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ljáði máls á afgreiðslu nefndarinnar. Hún sagði vinnulag meirihlutans með ólíkindum
Þetta er af Pressunni.
„Að ljá máls á einhverju“ er þarna notað á rangan hátt að mínu mati.