«

»

Molar um málfar og miðla CXXIII

 Einhver athyglisverðasta frétt sem ég hef lengi heyrt í sjónvarpi var í sjöfréttum RÚV (10.09.2009)  í kvöld. Þar var  fjallað um  leit að efnum í íslenskum jurtum  í ný lyf sem  hugsanlega gætu gagnast í framtíðinni í baráttu gegn  skæðum  sjúkdómum  eins og krabbameinum og  Alzheimer.

 Þetta er stórmerkilegt mál og í leiðinni er rétt að nefna  að vísindamaðurinn  dr.  Sigmundur  Guðbjarnason  hefur ásamt  Þráni Þorvaldssyni í markaðsmálunum  unnið merkt brautryðjendastarf. Víða  í veröldinni  (m.a. kunningjar mínir vestanhafs)  notar fólk nú lyf úr íslenskri ætihvönn. Öll lyf eru upprunalega úr  jurtum, þótt framleiðslan  fari nú  fram  í verksmiðjum eftir  starf á  tilraunastofum.

Það var kominn tími til að  sagt væri í fréttum frá alvöruvísindum, en ekki einhverju detoxkjaftæði sem, enginn íslenskur læknir eða  vísindamaður leggur nafn sitt við  og beinist umfram annað að því láta fólk greiða  fúlgur  fjár fyrir að láta  sprauta vatni upp í afturendann á sér.  Takk RÚV

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Haukur Kristinsson skrifar:

    Öll stærstu lyfjafyrirtæki heims hafa í áratugi leitað eftir efnum í jurtum, sveppum og bakteríum, sem nota mætti sem lyf eða sem fyrirmynd fyrir lyf (lead compound) vegna virkni þeirra. Milljónir af slíkum efnum hafa verið prófuð (screened), en árangurinn hefur verið sáralítill. Hér er því vissulega ekki um stórmerkilegt mál að ræða, þótt vonandi hafist eitthvað upp úr krafsinu.

    En líkurnar eru sáralitlar. Heilar verslanir selja óteljandi tegundir af svokölluðum fæðubótaefnum, t.d. Herbalife, þótt virkni þessara efna hafi aldrei verið sönnuð né staðfest. Í langflestum tilfellum hókuspókus.  

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>