Fróðlegt og áheyrilegt var það sem Morgunfrú Rásar eitt (10.08.2009) sagði eftir að klukkur Útskálakirkju í Garðinum höfðu ómað að lokinni morgunbæn. Verra var að hún skyldi segja að í dag væri tvö hundruðasti og tuttugasti og annar dagur ársins. Tvö hundruð tuttugasti og annar hefði dugað
Netmoggi (09.082009) : Þá segir hún að svo virðist sem að forsætisráðherra Íslands, fjármálaráðherra og íslenskar eftirlitsstofnanir hafi lítið gert til að stemma stigu við vöxt íslensku bankanna. Hér ættti að standa:…. stemma stigu við vexti íslensku bankanna.
Ólöf Nordal er þingkona Sjálfstæðisflokksins, var sagt í sex fréttum RÚV (09.08.2009). Ég hélt að Ólöf Nordal væri einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
5 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Yngvi Högnason skrifar:
10/08/2009 at 14:49 (UTC 1)
Tók ég eftir því sem Bjarni minnist á og gat ég ekki séð þessa dýrð (herlegheit) sem ljósmyndarinn sá.
bjarni dagur jónsson skrifar:
10/08/2009 at 12:32 (UTC 1)
Fyrirsögn um Gleðigöngu samkynhneigðra í Mbl. í morgun Áttatíu þúsund manns létu sjá sig“. Þetta er stórfurðuleg fyrirsögn um mannhafið í miðbænum s.l. laugardag. Er er verið að vísa til þess að það sé einhver áhætta tekin með því að láta sjá sig“ þarna meðal samkynhneigðra ? Er þetta einfaldlega skortur á innblæstri eða skáldlegri hugsun í fyrirsagnagerð? Nema þetta sé grín. Síðan segir í myndatexta: Ríflega 80.000 mannst söfnuðust saman…“ Við skoðun á orðinu ríflega kemur þetta dæmi upp við leit í Orðabók Háskólans: Eftir að bændur höfðu borgað karli ríflega ferðina, fór karl heim“. Sennilega hefur myndatextinn átt vísa til þess að mannfjöldinn hafi verið u.þ.b. 80 þús. manns.
En ekki er allt búið enn. Síðan segir í myndatexta um Gleðigöngu samkynhneigðra ..og smelltu ljósmyndarar blaðsins (Mbl.) myndum af herlegheitunum“ Við leit í Orðabók Háskólans er tekið dæmi af notkunn orðsins herlegheit: Auk sjósóknar höfðu Strandaringar mikil herlegheit af landbúnaði.
Er rétt að kalla skrúðgönguna og hátíðina herlegheit? Hvað með að ljósmyndari smelli myndum“ Ég held að betra hefði verið: ljósmyndari Mbl. tók myndir af skemmtiatriðum og skúðgöngu samkynhneigðra. Orðið skrúðganga er reyndar tengt trúarlegum göngum s.s. sjá má í Orðabók Háskólans: með gleðileikum og skrúðgöngum (prósessíum) á bæjarstrætum“.
Haukur Kristinsson skrifar:
10/08/2009 at 09:53 (UTC 1)
Þessi frétt í mbl.is í morgun er Rekordverdächtig…………………………………………………………………………………Farþegarnir um borð í Eurocopter AS350 þyrlunni, sem ferðaþjónustufyrirtækið Liberty Helicopter Sightseeing Tours gerir út, voru:Fabio Gallazzi sem var kvæntur Pedroni og svo Giacomo sonur þeirra.Michele var faðir Filippo og var eiginkona hans, Silvia Rigamonti, fjarverandi en þau voru í New York til að halda upp á 25 ára brúðkaupsafmæli þeirra hjóna. En Rigamonti kaus að fljúga ekki með þeim af ótta við að fljúga í þyrlu. Um borð í einshreyfils Piper Saratoga PA-32 flugvélinni voru:Flugmaðurinn Steven Altman, 60 ára, frá Ambler í Pennsylvaníu.Farþegarnir voru Daniel Altman, 49 ára, frá Desher í Pennsylvaníu, sem var bróðir Stevens og Douglas Altman, 16 ára sonur Douglas.
Sigurður Hreiðar skrifar:
10/08/2009 at 09:20 (UTC 1)
Þá segir hún að svo virðist sem að forsætisráðherra Íslands, —hvers vegna sem að? Mér er líka dálítil spurn með fleiri smáorð skotið er inn hér og hvar: ekur um á Cherokee grunur leikur á um að — hvers vegna um?
Sigrún Jóna skrifar:
10/08/2009 at 08:46 (UTC 1)
Já, það er enginn áhugi á réttri íslensku, í fjölmiðlum.
Svo síast vitleysurnar inní almenning sem halda að það sé töluð/skrifuð rétt íslenska í hljóðvarpi og dagblöðunum. Ekki má gleyma sjónvarpsrásunum.
Ég held að íslenskukennslu hafi farið aftur, og líka að kröfur fjölmiðla um kunnáttu í íslensku sé minni en fyrir 20-30 árum.