Í dag varð ég vitni að hrikalegasta framúrakstri sem ég hef séð. Er þó búinn að hafa bílpróf síðan haustið 1956 og meirapróf síðan haustið 1960.
Ég var að koma að austan á leið til Reykjavíkur á þjóðvegi númer 1 rétt fyrir ofan Sandskeið. Var annar eða þriðji í fjögurra bíla röð sem ók á 90-95 km hraða . Allt í einu kemur lítill vinnubíl, sennilega Benz með stuttum palli og fer fram úr mér og næsta bíl á undan. Til þess hefur hann sjálfsagt þurft að fara upp í hundrað km hraða eða svo,sem kannski er ekki tiltökumál við framúrakstur en framúrakstur þarna var með öllu ástæðulaus.
En sem þessi vinnubíll er við hliðina á mér kemur þriðji bílllinn á leið til Reykjavíkur, sennilega Porschejeppi , svartur og fer fram úr okkur báðum þannig að skamma stund voru þrír bílar samhliða á leið í sömu átt á þessum vegi þar sem aðeins er ein akrein í hvora átt. Jeppinn þurfti að fara út af slitlaginu með hjólin vinstra megin og þyrlaði upp ryki og grjóti. Hann var svo fljótur framúr og fljótur að hverfa að mér þykir líklegt að hann hafi verið á 140 til 150 km hraða. Þetta sáu mennirnir á Suðurverksbílnum jafnvel og ég svo og þeir sem voru í næsta bíl á eftir en sá bíll var af gerðinni Land Rover Discovery, sýndist mér. Þetta er eitt það svakalegasta sem ég hef séð , og er nema von að þjóðfélag okkar sé undarlegt þegar menn hegða sér svona. Það var Guðsmildi að þarna varð ekki alvarlegt slys. Númerið á bíl ökuníðingsins var mér ógerlegt að sjá , en sennilega hafa þeir á Suðurverksbílnum séð það, en ég sá ekki betur en þeir beygðu til hægri út á línuveg nokkru neðar. Það þarf að hafa hendur í hári svona manna.
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eygló skrifar:
13/08/2009 at 23:21 (UTC 1)
Okkur væri nú sennilega skítt sama um það. En bílstjórinn, farþegarnir og aðrir vegfarendur!
Ekki veit maður hvort þetta hefur verið „ungur ökumaður“ eða níræður níðingur, en hvað er hægt að gera? Maður veit aldrei hvenær einhver manni nærkomin verður fórnarlamb.
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
13/08/2009 at 19:08 (UTC 1)
Ók framhjá þessum stað á austurleið í dag. Sá að þar voru tvær háar,gular kantstikur brotnar.Það skyldi þó aldrei vera að einhversstaðar væri svartur Porschejeppi rækilega rispaður og beyglaður á vinstri hlið ?
Eygló skrifar:
13/08/2009 at 01:40 (UTC 1)
Vonandi hafa þeir náð bílnúmerinu og tilkynnt glæpaaksturinn. Á þetta fólk börn? foreldra? systkin? Er því sama um „annað“ fólk. Það má líkja þessu við vanvita að leika sér að skotvopni.