«

»

Ystu mörk fáránleikans

  Sá sem þetta  skrifar er örugglega ekki þekktur á  blogginu sem  sérstakur aðdáandi  Þráins Bertelssonar. Tillaga  þremenninganna er hinsvegar handan við ystu mörk  fáránleikans. Þremeninngarnir  voru   tilbúnir  að  kaupslaga með sannfæringu sína í pólitískum hrossakaupum  sem líklega eiga sér  fá  fordæmi. Þráinn Bertelsson  stóð við það sem hann hafði lofað. Það er líiklega  þessvegna   sem þríeykið vill hann burt. Mér finnst hann hafa sýnt manndóm.

mbl.is Vilja Þráin af þingi

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Haukur Kristinsson skrifar:

    RUV.is. Icelandair Group birti í dag uppgjör annars ársfjórðungs og fyrri helmings ársins 2009. Hvað er átt við? Væri ekki nær að segja; uppgjör annars ársfjórðungs og fyrri helmings ársins í heild. Eða er þetta hártogun hjá mér?

  2. Jóhanna Geirsdóttir skrifar:

    Ótrúlegt að blaðamenn skuli ekki kunna að beygja nafn Þráins rétt!

    http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/08/14/segir_thingmenn_skorta_domgreind/

  3. Hildur Helga Sigurðardóttir skrifar:

    Sýnist Þráinn þó hafa sýnt einna mestan þroska í því að hafa staðið í báða fætur þegar á reyndi. Ekkert þeirra fjögurra mætir hins vegar á fund með eigin fólki. Hvers konar grasrótarhreyfing er það ? Þjóðin á þing, eða þannig ?

  4. Jón Grétar Borgþórsson skrifar:

    Ég sé ekki betur en að þau 3 hafi staðið við sitt. Þráinn er allt í einu nú farin að tala um kosningarloforð og „flokkurinn über alles“. Ég kynnti mér vel stefnuskránna og talaði við BH fólk og ef þetta mál var í einhverri leynistefnuskrá falinn kjósendum þá er nokkuð ljóst að vandamálið er stórt.

    Svo ekki sé talað um að það sé með öllu óþolandi að Þráinn sé bara búinn að vera í fílu og neiti að tala við neinn.

  5. Björn Birgisson skrifar:

    Þráinn lagði til að þremenningarnir kölluðu allir inn varamenn vegna svika við málstaðinn. Nú er lagt til að hann kalli inn varamann. Lausn málsins getur verið sú að allir fjórir þingmennirnir víkji, sem ekki líklegt. Þetta fólk verður að koma sér saman um hlutina og snúa sér að lausn alvörumála. Til þess voru þau kjörin á hið háa Alþingi.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>